Fólk á ekki fyrir mat

stækka

mbl.is/Ómar

Morgunblaðið eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is

Huga þarf að þeim hópum sem eru rétt undir viðmiðum félagslega kerfisins, að því er Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju, segir. Fólk sem er í þeirri stöðu að hafa enn vinnu, en í láglaunastörfum, á jafnvel ekki fyrir mat og sumir neyðast til að hætta að kaupa skólamáltíðir fyrir börn sín. „Þegar allt er búið, þá er bara allt búið,“ segir Þórhallur. „Hvað gerir fólk þá?“ spyr hann svo.

„Ég hef orðið var við þetta sjálfur, fólk hefur leitað beint til mín, og svo fór ég að leita mér upplýsinga um hvað væri í boði og þarna virðist vera eitthvert gat í kerfinu. Ég rakst á tómarúm alls staðar,“ segir hann. Margir þurfi miklu meira en fjölskylduaðstoðina sem hugsuð er fyrir jólin. „Það eru margir sem eiga ekkert svo löngu fyrir jólin, eru kannski með lágmarkstekjur og þá rétt fyrir ofan bætur. Þessir einstaklingar eru bara í öngum sínum.“ Þessu fólki vísi félagsþjónustan frá, en þeir sem standi fyrir fjölskylduaðstoð hafi auðvitað ekki framfærsluskyldu. „Það virðist enginn hafa hugsað út í hvað á að gera fyrir fólk sem þarf framfærsluaðstoð,“ segir Þórhallur.

Hann segist einnig hafa orðið var við að foreldrar séu hættir að kaupa skólamáltíðir fyrir börn sín. „Ef enginn peningur er til er auðvitað ekki hægt að kaupa í matinn. Foreldrar hafa komið til mín og hafa áhyggjur af þessu því þeir geta ekki heldur keypt skólamáltíðirnar,“ segir hann. „Fólk er kannski ekki farið að svelta en ef það á ekki mat hvað þá?“

Þórhallur segist líka hafa áhyggjur af því að enginn virðist vera að leita lausna fyrir þennan hóp. Þetta þurfi að ræða á vegum borgar, bæjar og ríkis. „Auðvitað er gott að fólk gefur,“ segir Þórhallur um framlög einstaklinga til hjálparstarfs, „en mér finnst að hið opinbera eigi að taka ábyrgð á þessu fólki en ekki bíða eftir því að hjálparstofnanir og góðviljað fólk bjargi málunum.“ Hann telur að fjölga muni í hópnum nú þegar uppsagnir taka gildi hjá fjölda manna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Bensíngjöfin festist niðri

17:46 Bíll skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »
Þóra Arnórsdóttir ávarpaði gesti við opnun kosningamiðstöðarinnar í dag.

Gagnrýnir túlkun forseta Íslands

17:36 Helsta ógnun við stjórnskipun landsins er teygjanleg túlkun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, á valdsviði forseta. Þetta sagði Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi þegar hún opnaði kosningaskrifstofu sína í dag. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

Héraðsdómur Suðurlands.
16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í héraðsdómi Suðurlands fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
225-70-15C
óska eftir heilsárs dekkjum undir sendibíl að stærðinni 225-70-15C. Upplýsingar ...
Honda CR-V 2008 Til Sölu
Til sölu Honda Cr-v skráð 10.1.2008 Ekin 90.xxx þ km. Með öllum aukabúnaði nem...
Vilt Þu Aukatekjur
1 ár hysing + .com url + website builder = 25000 isk http://www.extrapaid.com/...
Toyota previa 7 manna
kom á götuna í nóv 2004,ekin 134 þús,sjálfskipt,krókur, álfelgur,ný heilsársdekk...
 
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....