Forsætisráðherra fer ekki með rétt mál
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, segir Geir H. Haarde ekki fara með rétt mál þegar hann fullyrði að auknar álögur á tóbak, áfengi og olíu, hækki ekki verðbólgu. Þvert á móti muni hækkunin leiða til hækkunar neysluvísitölu sem aftur hafi áhrif á verðtryggð lán heimilanna.
Í hádegisfréttum RÚV fullyrti Geir H. Haarde, forsætisráðherra að hækkun á áfengis- og tóbaksgjaldi og olíugjaldi hækki ekki verðbólgu.
„Þetta er því miður rangt hjá forsætisráðherra. Hækkun þessara gjalda mun leiða til þess að neysluvísitalan mun hækka um 0,4-0,5%. Þetta kom m.a. fram hjá sérfræðingum Hagstofu Íslands í sama fréttatíma. Afleiðing þessa er, að verðtryggt lán upp á eina milljón króna mun hækka um 5 þúsund krónur og 20 milljón króna verðtryggt húsnæðislán því hækka um 100 þúsund krónur,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Samtals munu verðtryggð lán heimilanna, sem eru 1.400 milljarðar króna, hækka um 6-7 milljarða króna bara vegna þessarar ákvörðunar og þá er ótalið aðrar gjaldskrárhækkanir eins og afnotagjöld RÚV og fleira.
Þolinmæði alþýðunnar þrotin
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness spyr í pistli á heimasíðu félagsins hvað auknar álögur á olíu, tóbak og áfengi eigi að þýða.
„Áttar ríkisstjórn Íslands sig ekki á því að það er ekki hægt að leggja meiri byrðar á skuldsett heimili landsins. Varla eru þessar hækkanir hluti af aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar til bjargar heimilum landsins. Svo er bara bíða og sjá hvaða álögur sveitarfélögin munu leggja á almenning, en það liggur fyrir að mörg þeirra eiga í umtalsverðum rekstrarvandræðum vegna þess ástands sem nú ríkir í íslensku efnahagslífi. Það er alveg ljóst að þolinmæði alþýðu þessa lands er að þrotum komin.Það er ótrúlegt að engin hafi verið látinn sæta ábyrgð á þessu grafalvarlega ástandi sem ríkir í íslensku samfélagi og það á sama tíma og fólk verður fyrir skerðingu á sínum launum, atvinnumissi og verðlag á vöru og þjónustu stórhækkar og allur þessi vandi sem blasir við íslenskri þjóð er vegna græðgivæðingar nokkurra fjárglæframanna,“ skrifar formaður Verkalýðsfélags Akraness.
Bloggað um fréttina
-
Karl Ólafsson Ég minni enn á að ... -
Ólafur Ragnarsson Úr einu í annað -
Ólafur Als Þetta mun einungis versna ... -
-
Guðrún María Óskarsdóttir. Hvað með formann Samfylkingar í ríkisstjórn, hvers vegna gagnrýnir Gylfi ... -
Marinó G. Njálsson Ályktunargáfa sem á sér ekki sinn líka
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 29. maí 2009, Innlent Mjög óvinsælar aðgerðir
- Fimmtudagur, 28. maí 2009, Innlent Álögur á eldsneyti og áfengi hækka
- Þriðjudagur, 22. desember 2009, Innlent Kassi af rauðvíni mun hækka um 381 krónu
- Föstudagur, 22. febrúar 2008, Innlent Segir ríkissjóð græða milljarð á bensínhækkun
- Föstudagur, 12. desember 2008, Innlent Þrýsta vísitölunni upp
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli





































