Skuldabréf eigenda 20% af sjóð

Höfuðstöðvar Kaupþings við Borgartún. stækka

Höfuðstöðvar Kaupþings við Borgartún. mbl.is/Golli

Morgunblaðið Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is

Skuldabréf útgefin af fyrirtækjum og bönkum voru keypt úr úr peningamarkaðssjóði Kaupþings með 44% afslætti. Alls voru keypt út bréf sem voru í októberbyrjun metin á 12,4 milljarða króna og greiddir fyrir um sjö milljarðar króna. Slík skuldabréf voru um þriðjungur af samsetningu sjóðsins en afgangurinn innlán sem voru greidd út að fullu.

Rúmlega 80% allra bankabréfa í sjóðnum voru útgefin af Kaupþingi sjálfu og helmingur skuldabréfa fyrirtækja í sjóðnum voru bréf frá Exista og Bakkavör. Exista var stærsti eigandi Kaupþings fyrir fall bankans og átti einnig Bakkavör. Því var um fimmtungur sjóðsins skuldabréf frá Kaupþingi og aðilum tengdum eigendum bankans. Sjóðnum var síðan slitið eftir að hafa greitt út eina heildargreiðslu til sjóðfélaga í lok október. Hlutfall útgreiðslunnar nam 85,3% af þeirri upphæð sem sjóðurinn var hinn 3. október.

Sjóðurinn var samtals 84,3 milljarðar króna að stærð í lok árs 2007. Þar af námu skuldabréf útgefin af fyrirtækjum 38,8 milljörðum króna, eða 46%. Innlán á þeim tíma námu samstals 15,5 milljörðum króna eða rúmlega 18% af heildarsamsetningu. Samsetning breyttist hins vegar töluvert á fyrstu mánuðum ársins 2008. Heimildir Morgunblaðsins herma að það hafi aðallega gerst vegna gjaldþrots Gnúps, en töluvert af skuldabréfum þess félags var í sjóðum Kaupþings. Þegar bréfin voru fjarlægð úr peningamarkaðssjóðnum tók hann á sig högg í ávöxtun og missti við það þónokkurn fjölda viðskiptavina. Í apríl hafði sjóðurinn minnkað niður í 49 milljarða króna og þar af voru skuldabréf fyrirtækja að andvirði 14,7 milljarðar, eða um 30%. Á sama tíma jukust innlán mikið og voru orðin 66% af heildarsamsetningu við slit sjóðsins. Sömu heimildir herma að í upphafi árs hafi skuldabréf frá Gnúpi verið að finna í peningamarkaðssjóðum allra stærstu bankanna. Hinir bankarnir hafi hins vegar ákveðið að kaupa þau út án þess að sjóðirnir tækju á sig högg og haldið áfram að vaxa allt fram að lokum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
LED perur 80% orkusparnaður !
LED er þróun sem lækkar orkunotkun allt að 80%, perurnar eru umhverfisvænar. Ve...
Honda Civic ES 2006
Honda Civic ES árgerð 2006 svartur. Ekinn aðeins 61 þús. sjálfskiptur, topplúga,...
Sófasett (2+1)
Lítið notað og vel með farið sófasett 2 +1. Stærð sófa 170cm. Verð 35.000 S. 863...
Seldu notuð kælikerfi
Áttu ónotuð kælikerfi sem þú vilt losna við? Viltu kaupa ódýr kælikerfi? Önnumst...
 
Útboð ljósleiðaravæðing

Skeiða- og Gnúpverjahreppur Útboð S...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Teacher, nautical education
Grunn-/framhaldsskóla
Lofoten Maritime College Norway POSI...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...