Stúdentar gagnrýna niðurskurð

mbl.is/Kristinn

Stúdentaráð Háskóla Íslands gagnrýnir harðlega niðurskurð, sem boðaður er á framlögum til Lánasjóðs íslenskra námsmanna og Háskóla Íslands. Segir í ályktun ráðsins, að ríkisstjórnin virðist hundsa þá staðreynd að þegar kreppi að sæki verulegur fjöldi Íslendinga sér menntun í háskóla.

„Nýjustu tölur sýna að sexföldun er í skráningu í grunn- og framhaldsnám HÍ á vorönn miðað við í fyrra. Af hverju gera forsendur fjárlaga ráð fyrir aðeins 5% fjölgun námsmanna á lánum þegar fyrir liggur að þeim muni fjölga um 20 eða jafnvel 30 prósent þegar aukinn fjöldi hefur nám, atvinnutækifæri gufa upp og baklönd verða ótryggari fjárhagslega? Af hverju hundsar ríkisstjórnin sína eigin stefnumörkun um eflingu menntunarstigs þjóðarinnar og þá tölulegu staðreynd að menntunarstig Íslendinga rétt hangir í meðallagi miðað við nágrannaþjóðir okkar?" er spurt í ályktuninni.

Þar segir einnig, að fyrir síðustu alþingiskosningar hafi allir stjórnmálaflokkar lofað að efla lánasjóðskerfið.

„Vissulega standa Íslendingar fyrir breyttum aðstæðum og rúmlega 20.000 stúdentar landsins eru engin undantekning. Það er þó makalaust að þegar stúdenta- og námsmannahreyfingar landsins hafa æ ofan í æ talað fyrir nauðsyn þess að fjármagn til LÍN verði ekki skert og hlúið verði almennilega að háskólum verði niðurstaðan eins og raun ber vitni – verulegur niðurskurður sem og váleg skilaboð ríkisstjórnar til stúdenta. Stúdentaráð Háskóla Íslands fer fram á að stjórnvöld endurskoði afstöðu sína."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert