240 milljónir ekki réttur kostnaður

Frá húsnæði Tryggingastofnunar.

Frá húsnæði Tryggingastofnunar. mbl.is/Árni Torfason

Óhætt er að helminga þá tölu sem nefnd var á Alþingi í dag, 240 milljónir, sem kostnað við Sjúkratryggingar Íslands að sögn forstjóra stofnunarinnar, Steingríms Ara Arasonar. Milljónirnar 240 séu teknar úr skýrslu sem lögð var fram í upphafi um mesta hugsanlega kostnað við stofnunina.

„Það liggur fyrir skýrsla þar sem þessi tala er nefnd og þá er dæminu stillt þannig upp að ef Tryggingastofnun væri skipt upp í tvær alveg sjálfstæðar stofnanir sem hefðu ekkert samstarf á einu eða neinu sviði, þá mætti gera ráð fyrir að kostnaðurinn yrði 240 milljónir á ári“ segir Steingrímur Ari. Rekstraráætlunin nú sé hinsvegar með öðrum hætti. „Núna liggur alveg ljóst fyrir að menn sjá hagkvæmni í því að hafa ákveðna hluti í samrekstri og þar með er hægt að ná þessari tölu umtalsvert niður og það er okkur uppálagt.“

Steingrímur segir að þó þessi tala hafi í upphafi verið nefnd hafi það verið alveg ljóst frá upphafi að með samstarfi milli Tryggingastofnunnar og hinnar nýju stofnunar Sjúkratrygginga Íslands mætti lækka þessa tölu verulega og að því hafi verið stefnt. „Við erum með samliggjandi húsnæði og það eitt og sér gefur kost á samstarfi. En síðan er líka vilji til þess að vera með ákveðna þætti þar fyrir utan í samrekstri eins og sameiginlega þjónustumiðstöð og samrekstur á tölvukerfi og öðru.“

Óhjákvæmilegt en jafnframt eftirsóknarvert

Þótt endanleg tala liggi ekki fyrir, enda fjárlög ekki fullsmíðuð, segir Steingrímur þó óhætt að helminga milljónirnar 240. „Menn hafa verið að ganga út frá bilinu 100-140 milljónir, þó að auðvitað séu ákveðin vikmörk.“ Hann bendir á að sem þessari hljóti alltaf að fylgja einhver viðbótarkostnaður, það sé óhjákvæmilegt en jafnframt eftirsóknarvert.

„Með því að hafa tvær stofnanir, tvo forstjóra í staðinn fyrir einn, tvær stjórnir og svo framvegis, þá eru menn auðvitað að gefa hvorum málaflokknum fyrir sig meira vægi. Auðvitað er lagt í þennan kostnað til að styrkja starfsemina og efla þjónustuhlutverk beggja stofnana, þannig að það er ekki eins og þetta sé tapað fé.“

Þá segir Benedikt Jóhannesson, stjórnarformaður Sjúkratrygginga Íslands, að ekki standi til að aðskilja upplýsingakerfi stofnananna tveggja. Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, sagði við MBL sjónvarp í dag að kostnaður við það myndi hlaupa á hundruðum milljóna til viðbótar. „Það er í sjálfu sér alveg rétt, en það bara er ekki til umræðu að aðskilja tölvukerfin og stendur ekki til. En ég er viss um að svo væri þá er rétt að það myndi eflaust kosta mjög mikið,“ segir Benedikt. Hann bendir auk þess á að hluta af kostnaði við Sjúkratryggingar Íslands hafi áður verið við Tryggingastofnun, það sé því ekki viðbótarkostnaður heldur færist hann einfaldlega til milli stofnana.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TRAKTORSDEKK
Traktorsdekk rýmingarsala 11.2-24 kr. 35.900. 14.9-24 kr. 49.900. 13.6-24...
Frí auglýsing NÝR BÍLASÖLUVEFUR
Bílaþjónusta.is bíður öllum að auglýsa bíla mótorhjól hjólhýsi og vagna frítt, s...
Zimmermann píanó
Til sölu vel meðfarið Zimmermann píanó. Verð 125.000. Upplýsingar í síma 84589...
GLÆSILEGIR
GLÆSILEGIR Teg. MYSTERY - Hægt að nota ÁN HLÝRA - Glæsileg blúnda, fæst í A, B, ...
 
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Stykkishólmur vatnshús við skipavíkurbryggju

Útboð Stykkishólmur, vatnshús við...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Útboð ljósleiðaravæðing

Skeiða- og Gnúpverjahreppur Útboð S...