Dýr Sjúkratryggingastofnun

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið
mbl.is Eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur Mbl sjónvarpi. tka@mbl.is
 

Kostnaður við nýja Sjúkratryggingastofnun hleypur á hundruðum milljóna.  Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði á Alþingi í morgun að talan 240 milljónir á ári væri út úr öllu korti. Forstjóri Tryggingastofnunar segir hinsvegar að þar til viðbótar  komi hundruð milljóna vegna kostnaðar við tvö upplýsingakerfi í stað eins.

 Ögmundur Jónasson þingmaður VG segir að það kosti 240 milljónir á ári að stofna nýja Sjúkratryggingastofnun sem á að taka yfir hluta af verkum Tryggingastofnunar ríkisins. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun.  Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði að  kostnaðartölurnar sem þingmaðurinn hefði nefnt væru út úr öllu korti og hann hefði enga trú á því að þær stæðust.

Sigríður Lillý Baldursdóttir forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins sagði hinsvegar í samtali við MBl sjónvarp að 240 milljónir væri allt of lág tala.  Þar væri ótalinn kostnaður við að aðgreina upplýsingakerfi stofnananna en hann hlaupi á hundruðum milljóna.

Geir sagði ennfremur að Alþingi hafi samþykkt að færa tiltekinn hluta verkefna Tryggingastofnunar undir nýja stofnun. Unnið væri í samræmi við það og hann viti ekki betur en það væri gert í bróðerni og sátt.

Skiilja mátti hinsvegar á Ögmundi Jónassyni að heitt hefði verið í kolunum á sameiginlegum fundi Heilbrigðis og trygginganefndar í morgun. Hann sagðist hafa orðið lítið var við bróðerni og sátt en meira við glundroða, ósætti og stjórnleysi á umræddum fundi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi.

Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins

Í gær, 23:28 „Gaman að þessum stjórnmálafræðingum sem fjölmiðlar tala helst við. Þegar stjórnarflokkarnir fá ærlega rassskellingu heitir það ávallt „fjórflokkurinn“. Það var vandamál „fjórflokksins“ þegar margir voru óákveðnir og enginn annar valkostur var kominn fram,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Meira »
Lögreglumenn við Holtavörðuheiði.

Ökumenn í vanda vegna hálku

Í gær, 22:24 Allmikið hefur verið um umferðaróhöpp á Holtavörðuheiði í dag og fram á kvöld vegna hálku. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi hafa bílar lent út af veginum en engin slys þó orðið á fólki. Meira »

Hestar sluppu eftir bílveltu

Í gær, 22:20 Jeppabifreið með hestakerru í eftirdragi valt út fyrir veg í grennd við Grundartanga á tíunda tímanum í kvöld. Ökumaður hlaut minniháttar meiðsli og hestarnir eru taldir hafa sloppið ómeiddir. Jeppinn er talinn ónýtur og hestakerran var töluvert löskuð. Meira »

Snjóar í höfuðborginni

Í gær, 21:44 Snjóað hefur lítilsháttar í höfuðborginni í kvöld. Á morgun er spáð suðvestan átt á landinu, víða 8-15 m/s.   Meira »

Fljótsdalshérað vann Hveragerði

Í gær, 21:19 Fljótsdalshérað vann Hveragerði í fyrstu útslitaviðureign Útsvars í RÚV í kvöld. Leikar fóru 68-64. Keppnin var æsispennandi. Meira »

Nokkrir skjálftar í kvöld

Kort yfir jarðskjálfta á landinu.
Í gær, 22:11 Skjálftavirkni hefur verið suðaustur af Húsafelli í kvöld. Nokkrir skjálftar hafa mælst þar frá klukkan 18.45, þeir stærstu 1,9 stig. Stærsti jarðskjálfti dagsins mældist hins vegar 2,5 stig, 20 km norðaustur af Siglufirði. Meira »

Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu

Breytt sveitarfélagaskipan á höfuðborgarsvæðinu er talin æskileg.
Í gær, 21:23 Tæplega sjötuíu prósent alþingismanna, sveitarstjórnarfulltrúa og framkvæmdastjóra sveitarfélaga telja æskilegt að breyta sveitarfélagaskipan á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í könnun sem gerð var fyrir innanríkisráðuneytið. Meira »

Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði

Átök á Íslandsmótinu í júdó.
Í gær, 20:41 „Á blautum dögum renna óslitnar vatnsbunur inn í æfingaherbergið og þar með liggja nýju júdódýnurnar undir skemmdum.“ Þetta sagði fulltrúi Framsóknarflokks í bæjarstjórn Reykjanesbæjar um aðstöðuna hjá Júdódeild UMFN um leið og hún kallaði eftir bættu húsnæði. Meira »

Vel á annað þúsund á Bessastöðum

Sigurður Magnús Magnússon, 28 mánaða, ræðir við Dorrit Moussaieff forsetafrú á Bessatöðum í dag.
Í gær, 20:20 Vel á annað þúsund manns lögðu leið sína á Bessastaði í dag en forsetasetrið var opið almenningi sem liður í Safnanótt 2012. Um var að ræða fólk á öllum aldri, mikið af fjölskyldufólki og ungu fólki, og samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu forseta tókst afar vel til. Meira »

Fíkniefni ætluð fanga fundust

Fíkniefni.
Í gær, 19:06 Smokkur með fíkniefnum fannst á salerni Landspítala í gær eftir að yfirmenn á Litla-Hrauni vöruðu spítalann við að fangi sem þangað var að koma myndi fá þau afhent þar. Þetta kom fram í sjónvarpsfréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Akureyrarstofa óánægð með Alþingi

Bókasafn.
Í gær, 20:12 Stjórn Akureyrarstofu er ósátt með að sjálfsákvörðunarréttur sveitarfélaga hafi ekki verið virtur þegar breytingar voru gerðar á lögum um almenningsbókasöfn. Regla um hámarkssektir komi mjög niður á Amtbókasafninu á Akureyri. Meira »

Meirihluti vill kosningar í vor

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Í gær, 18:59 Meirihluti landsmanna vill að þing verði leyst upp og boðað verði til alþingiskosninga í vor. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Meira »

Gáleysi að fara upp lausan stiga

Á vinnusvæði.
Í gær, 18:56 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Sjóvá-Almennar tryggingar hf. af kröfu manns sem taldi sig eiga rétt til bóta úr ábyrgðartryggingu Ístaks. Maðurinn slasaðist við vinnu hjá Ístaki þegar hann datt úr lausum stiga. Dómurinn taldi slysið rakið til gáleysis mannsins. Meira »

Miklaborg hreinsuð af ásökunum

Í gær, 18:43 Eftirlitsnefnd Félags fasteignasala hefur hreinsað fasteignasöluna Mikluborg af ásökunum um að ranglega hafi verið staðið að verðmati á íbúð við Byggðarenda í Reykjavík. Segir í úrskurðinum að vinna fasteignasölunnar hafi verið í samræmi við góðar venjur í fasteignasölu. Meira »

Frystir með kvöldinu

Í gær, 18:20 Það frystir víða aftur í kvöld og nótt og áfram verða smáél vestantil. Þar myndast varasöm ísing við þessar aðstæður, þegar hiti er alveg við frostmarkið, segir í upplýsingum frá Vegagerðinni. Meira »

Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund

Sigurður Árni Þórðarson.
Í gær, 18:46 Sigurður Árni Þórðarson skilaði tilkynningu um framboð í biskupskjöri til Biskupsstofu í dag. Af því tilefni efnir stuðningsfólk hans til málefnafundar í Hallgrímskirkju á sunnudaginn. Meira »

Karl á áttræðisaldri í haldi

Á vettvangi í Hverfisgötu.
Í gær, 18:22 Karl á áttræðisaldri er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, grunaður um aðild að sprengjumálinu svonefnda. Lögregla hefur jafnframt lagt hald á ýmsan búnað sem tengist málinu, auk þess sem bíll mannsins er í vörslu lögreglu en ökutækið er sömu gerðar og lýst var eftir. Meira »

Handtekinn vegna sprengjumáls

Frá vettvangi á Hverfisgötu.
Í gær, 17:41 Karlmaður var handtekinn á Suðurnesjum í dag í tengslum við rannsókn lögreglu á sprengju sem fannst við Hverfisgötu í Reykjavík á síðasta degi janúarmánaðar. Samkvæmt heimildum mbl.is var einnig lagt hald á bifreið. Yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar vildi ekki tjá sig um málið. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
DÖMUSTÍGVÉL
Teg. 4141 - Vönduð dömustígvél úr leðri, fóðruð og á lágum hæl. Stærðir 36 - 40,...
Tabbert Vivald 560 TD 2.5. Árg. 2008
Hjólhýsi með öllu, Sólarsellu, markísu, sjónvarpsloftneti, útvarp, Alde ofnaker...
Húsaleigusamningar
Löggiltur skjalapappír fyrir samninga. 100kr. stk. Dyraskilti 3.600 kr. BOÐI ...
TILBOÐSDAGAR SKÓR
Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi Tilboðsdagar â€" Skór 30% - 50% afslátt...
 
Skipstjóri
Önnur störf
Skipstjóri Skipstjóri ...
1 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Stúkan helgafell
Félagsstarf
m HELGAFELL 6012020819 VI...
Vélvirki starf í noregi
Iðnaðarmenn
Vélvirki Starf í Nore...