17,5 milljarðar í bætur
Eftir Ágúst Inga Jónsson og Magnús Halldórsson
Gert er ráð fyrir að 17,5 milljarðar króna verði greiddir úr Atvinnuleysistryggingasjóði á næsta ári, í endurskoðuðu fjárlagafrumvarpi. Einnig er lagt til að framlag til Ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota verði 1.800 milljónir á árinu 2009.
„Á næsta ári gerum við ráð fyrir að þessi upphæð nánast tvöfaldist og verði um 1.800 milljónir,“ segir Sigurður P. Sigmundsson, sviðsstjóri rekstrarsviðs Vinnumálastofnunar. „Þarna er um sprengingu að ræða hvað varðar greiðslur úr Ábyrgðasjóðnum og margar greinar atvinnulífsins eru orðnar veikburða. Ég er ekki aðeins að tala um byggingariðnaðinn, því gjaldþrot hafa t.d. aukist í þjónustugreinum og nú hafa jafnvel fasteignasölur komið inn á borð Ábyrgðasjóðsins,“ segir Sigurður.
Hann segir að áætlun um 5,7% atvinnuleysi á næsta ári sé varfærnisleg.
„Eins og staðan er núna bendir allt til að meðalatvinnuleysi í desember verði 4,5% og hjá Vinnumálastofnun höfum við talað um að í lok janúar gæti atvinnuleysið verið orðið um 6% og allt að 7% í lok febrúar.“
Í gær voru 8.935 manns á atvinnuleysisskrá samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun, sem samsvarar um 5,4% atvinnuleysi. 5.575 karlar eru án atvinnu, en 3.360 konur. Þeim sem eru án atvinnu hefur því fjölgað hratt frá því í október. Sérstaklega hafa margir starfsmenn í byggingariðnaði misst vinnuna, en aðrar stéttir hafa líka orðið fyrir áföllum.
Jóhanna Harpa Árnadóttir, formaður Verkfræðingafélags Íslands, segir verkfræðinga vera farna að horfa út fyrir landsteinana, nú þegar tugir eða hundruð þeirra hafa fengið uppsagnarbréf. Margir þeirra séu eftirsóttir af erlendum fyrirtækjum.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 17. desember 2008, Innlent Greiðslur vegna gjaldþrota tvöfaldast
- Laugardagur, 7. febrúar 2009, Innlent Tæmist sjóðurinn í árslok?
- Miðvikudagur, 1. apríl 2009, Innlent Tveir milljarðar í bætur
- Fimmtudagur, 8. október 2009, Innlent 25 milljarðar í atvinnuleysisbætur
- Föstudagur, 10. október 2008, Innlent Innistæður í 3% atvinnuleysi myndu duga í nítján mánuði
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































