Framtíðin er fiskur!
Í greininni segir að nú standi Íslendingar í biðröðum eftir því að fá vinnu í fiski. mbl.is
„Einhver bankamaður sagði að við þyrftum ekki á fiskinum að halda. Hann sagði að við gætum grætt peninga í gegnum bankana,“ segir Helgi Mar Sigurgeirsson vélstjóri í samtali við AP-fréttastofuna. „Ég myndi vilja tala við þennan bankamann núna,“ bætir Helgi svo við.
Í langri grein á vef AP er farið yfir það að Íslendingar hafi í gegnum tíðina lifað af fiskinum í sjónum, en þetta hafi breyst á nokkrum undangengnum árum. Dregin er upp rómantísk mynd af þessum afkomendum víkinganna sem við ill kjör sóttu sjóinn á litlum kænum. „Þetta var erfitt líf, litað hættu og átökum,“ segir þar.
Þorskastríðið er rifjað upp og lýsingar á því að Íslendingar hafi verið búnir að fá sig fullsadda af veiðiþjófnaði erlendra fiskiskipa. „Einhliða færðu Íslendingar út landhelgina nokkrum sinnum og enduðu í 200 mílum.“
Umhverfisverndarsinnar og erlend ríki eru minna hrifin af hvalveiðistefnu landsins, segir í greininni og rifjað er upp að þjóðin hafi tekið upp hvalveiðar að nýju árið 2006.
Haft er eftir Einari K. Guðfinnssyni sjávarútvegsráðherra að iðnaður tengdur sjávarútvegi hafi ætíð verið hryggjarstykki íslensks efnahags. Efnahagsástandið geri það að verkum að „sjávarútvegurinn muni vaxa að mikilvægi á ný“.
Íslendingar hafa á undanförnum árum látið dáleiðast af auðfengnum aurum. Veikar reglur um efnahagsmál, bóla á verðbréfamarkaði og rísandi króna eru sagðar hafa hjálpað íslenskum framkvæmdamönnum að leggja í alþjóðlegt kaupæði. „Nýtt úrval ofurríkra Íslendinga flaug um á einkaþotum, ók um stræti Reykjavíkur á Hummer og Range Rover. Reykjavík breyttist úr hrjúfu sjávarþorpi í glansandi höfuðborg.“
„Við gátum ekki haldið sjávarútvegsfyrirtækjum gangandi nema með erlendu vinnuafli af því að Íslendingarnir voru uppteknir í bönkunum,“ er haft eftir Sigurði Sverrissyni, forstöðumanni kynningarmála hjá Landssambandi íslenskra útvegsmanna, í greininni. Hann segir einnig að nú eftir bankahrunið mikla standi Íslendingar í biðröðum eftir störfum í fiskiðnaði þar sem miklar uppsagnir hafa átt sér stað í bankageiranum.Í lok greinarinnar kemur fram að Sigurður Sverrisson sjái nú nýja ógn framundan fyrir sjávarútveginn, nefnilega Evrópusambandið, sem margir Íslendingar líti vonaraugum til í yfirstandandi efnahagserfiðleikum. „Með því að ganga í ESB þyrftum við að láta stjórnun fiskveiða af hendi,“ segir hann.
Bloggað um fréttina
-
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson Framtíðin er fiskur, ekki vafi. -
Jóhann Elíasson Núverandi forsætisráðherra lét líka hafa þetta eftir sér!!!!!! -
Þórarinn M Friðgeirsson Framtíðin er fiskur -flott tilvitnun í Helga Mar.?? -
Haraldur Haraldsson Framtíðin er fiskur og Hvalur !!!!!! -
Þórarinn Þ Gíslason ÉG ER EKKI Í NOKKRUM VAFA UM AÐ FISKURINN VERÐUR ... -
Guðrún María Óskarsdóttir. Veðsettur óveiddur fiskur er hins vegar EKKI framtíðin.
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Miðvikudagur, 4. júní 2008, Innlent Nýir stúdentshúfusalar seldu nóg
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
- Fimmtudagur, 2. apríl 2009, Innlent Laus sæti á lista Lýðræðishreyfingarinnar
- Miðvikudagur, 28. nóvember 2007, Innlent 30.000 nýir fermetrar fyrir jól
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































