Sjúklingum kastað 60 ár aftur í tímann

Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands segir lög brotin á sjúklingum með fyrirhuguðum niðurskurði  í heilbrigðiskerfinu. Ekki sé búið að lýsa yfir neyðarástandi sem sé forsenda þess að taka lög úr sambandi.  Hún segir heilbrigðiskerfi Íslendinga kastað sextíu ár aftur í tímann í einu vetfangi og ekkert bendi til þess að það sé tímabundin aðgerð. Ráðamenn hafi hinsvegar tryggt að sú launalækkun sem þeir ætla að taka á sig sé einungis tímabundin.

Kristín segir sjúklinga eiga rétt á bestu fáanlega heilbrigðisþjónustu á hverjum tíma samkvæmt lögum, það sé ekki gert með því að fækka legudögum  meira en hafi verið gert nú þegar.

Kristín segir að þetta komi hart við alla sjúka, bæði andlega og líkamlega. Landlæknir eigi samkvæmt nýjum lögum um heilbrigðisþjónustu að fylgjast með gæðum þjónustunnar. Hann hljóti að láta eitthvað frá sér fara um þetta ástand.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert