Sinnum okkar skyldum við lesendur
„Við tókum þá ákvörðun að sinna okkar skyldum við lesendur og áskrifendur og halda áfram að gefa út blað, “ sagði Kolbeinn Þorsteinsson, trúnaðarmaður blaðamanna á DV að loknum starfsmannafundi í dag.
Starfsmenn þinguðu í dag um eigin stöðu og samskiptin á ritstjórninni í kjölfar þess að Reynir Traustason, ritstjóri DV, varð uppvís að því að láta undan þrýstingi og birti ekki frétt um Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans. Fréttin snerist um að Sigurjón hefði komið á fót ráðgjafafyrirtæki í húsnæði Landsbankans og vonaðist í framhaldi eftir verkefnum frá bankanum.
Í upptöku af samtali Jóns Bjarka Magnússonar, fyrrverandi blaðamanns á DV og Reynis Traustasonar, sem spiluð var í Kastljósi í fyrravöld, segir Reynir beinum orðum við Jón Bjarka að fréttin um Sigurjón verði ekki birt vegna hótana frá mönnum sem hafi framtíð blaðsins á valdi sínu. Það sé spurning um líf eða dauða blaðsins að umrædd frétt verði ekki birt. Jón Bjarki sætti sig ekki við það og sagði upp. Hann birti jafnframt fréttina á vefritinu Nei og upptakan af samtali hans við ritstjórann var spiluð í Kastljósi.
Ritstjórar DV reyndu að klóra yfir málið og gera blaðamanninn tortryggilegan. Starfsmenn funduðu um málið í gær, með og án ritstjóranna og var mikill kurr meðal starfsmanna. Einn blaðamaður sagði upp störfum vegna málsins í gær.
Reynir Traustason sendi frá sér yfirlýsingu í gærkvöld þar sem hann harmar að fyrstu viðbrögð hans hafi verið ónákvæm, og í leiðara DV í morgun bað hann almenning og starfsfólk DV afsökunar.
„Þetta dugar okkur, við lítum þannig á. Enda held ég að búið sé að segja nóg í þessu máli,“ sagði Kolbeinn Þorsteinsson, trúnaðarmaður blaðamanna á DV.
Bloggað um fréttina
-
Jenný Anna Baldursdóttir Allt fyrir almenning -
Ástþór Magnússon Wium Lögreglukæra og beiðni um álit frá Blaðamannafélagi Íslands
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 16. desember 2008, Innlent Reynir biðst afsökunar
- Miðvikudagur, 17. desember 2008, Innlent Aldrei aftur mun óttinn stýra fréttaflutningi
- Mánudagur, 15. desember 2008, Innlent Upptaka af útskýringum ritstjóra DV
- Þriðjudagur, 16. desember 2008, Innlent Björgólfur: Fjarstæða en kemur ekki á óvart
- Mánudagur, 15. desember 2008, Innlent Reynir: Fréttin bætti engu við
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































