Staða þeirra sem minna mega sín verði varin

Frá baráttufundi ASÍ nýlega.
Frá baráttufundi ASÍ nýlega. mbl.is/Golli

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands segir það óhjákvæmilegt, að ráðast í það erfiða verkefni að taka á hallarekstri ríkissjóðs. Afar mikilvægt sé að varin verði staða þeirra sem minnst mega sín við þessar erfiðu aðstæður, s.s. elli- og örorkulífeyrisþega.

Í ályktun, sem samþykkt var í dag, segir að ljóst sé að það taki nokkur ár að koma ríkisfjármálunum í jafnvægi. Miðstjórnin leggi á það áherslu að stjórnvöld leggi fram tillögur sem taka á því hvernig jafnvægi verði komið á ríkisreksturinn á næstu árum og óvissu verði þannig eytt.

„Miðstjórnarfundur haldinn 17. desember 2008 telur afar mikilvægt að varin verði staða þeirra sem minnst mega sín við þessar erfiðu aðstæður, s.s. elli- og örorkulífeyrisþega. Í þeim ráðstöfunum sem kynntar hafa verið vantar verulega á að þetta hafi verið gert. Heildarsamtök launafólks ákváðu því í síðustu viku að fresta öllum viðræðum um endurskoðun og gerð nýrra kjarasamninga vegna áranna 2009 og 2010 fram yfir áramót. Ef takast á að skapa ásættanlegan grundvöll að slíkri vinnu telur miðstjórn ASÍ nauðsynlegt að gerðar verði breytingar á eftirfarandi þáttum:

  • Dregið verði úr niðurskurði vegna elli- og örorkulífeyris með upptöku frítekjumarks vegna greiðslna úr lífeyrissjóðum.
  • Unnið verði á næstu vikum að tillögum um það hvernig auka megi tekjujöfnunarhlutverk skattkerfisins.
  • Sett verði lög um greiðsluaðlögun sem heimili niðurfærslu og skilmálabreytingu á húsnæðisskuldum heimilanna.
  • Stofnaður verði Bjargráðasjóður heimilanna til að auðvelda niðurfærslu húsnæðisskulda.
  • Settur verði starfshópur með fulltrúum byggingarmanna til að fara yfir verklegar framkvæmdir og forgangsraða mannaflsfrekum framkvæmdum.
  • Ráðherrar, þingmenn og æðstu embættismenn njóti sömu lífeyrisréttinda og aðrir opinberir starfsmenn.
  • Staðið verði við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 17. febrúar 2008.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert