Endurskoðendur skorti yfirsýn á umfangi
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is
„Ég leyfi mér að efast um að endurskoðendur hafi haft fulla yfirsýn hvað var að gerast hjá mörgum af þessum félögum. Þau voru oft dreifð út um allan heim,“ segir Aðalsteinn Hákonarson, deildarstjóri hjá ríkisskattstjóra, en hann skrifaði grein í desemberhefti Tíundar, fréttablaðs ríkisskattstjóra, um skuldsettar yfirtökur og samruna fyrirækja hérlendis.
Þar segir hann að viðskiptalífið á Íslandi hafi snúist um vissar blekkingar sem snerust um að sýna eins góða fjárhagsstöðu fyrirtækja og mögulegt var með því að færa allar eignir þeirra til bókar á hæsta mögulega verði.
Aðalsteinn vill þó ekki meina að endurskoðendur hafi verið blekktir en starfsumhverfi þeirra hafi gert stöðu þeirra mjög viðkvæma. „Það samband sem er milli verkaupandans, fyrirtækjanna, og endurskoðandans er mjög viðkvæmt því að það er hægt að henda endurskoðandanum út ef menn eru óánægðir með hann. Ég hef talið mjög nauðsynlegt að tryggja starfsumhverfið með þeim hætti að endurskoðendur verði skipaðir til fimm ára í þessum stærri félögum og fjármálafyrirtækjum og hættu síðan að þeim tíma loknum. Þannig hafa þeir ákveðið öryggi og gætu beitt sér af fullum þunga. Ég hef það á tilfinningunni að þeir hafi ekki alltaf getað það. Stjórnendur félaga eru alltaf að sýna stöðu sem eykur virði hlutabréfanna. Ég held að tiltekin varúðarsjónarmið, sem mikilvægt er að hafa til hliðsjónar í reikningsskilum, hafi stundum verið lögð til hliðar. Þegar spennan og hraðinn verður svona mikið, líkt og hér var, verður þáttur endurskoðendanna minni en þáttur stjórnendanna dálítið yfirgnæfandi. Þarna voru kraftar sem toguðust á.“
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 17. desember 2009, Innlent Yfirlýsing óheppileg en lögleg
- Föstudagur, 4. desember 2009, Innlent Hundruð milljarða með skuldsettri yfirtöku
- Fimmtudagur, 3. desember 2009, Innlent Gagnrýna ummæli embættismanns
- Fimmtudagur, 18. desember 2008, Innlent Fyrirtæki þrifust á blekkingum
- Föstudagur, 13. nóvember 2009, Innlent Þrýstu á um að sleppa við að borga skatta af afskrifuðum skuldum
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































