Fréttablaðið sýknað af meiðyrðakæru

Fréttablaðið stækka

Fréttablaðið mbl.is/Arnaldur

Ritstjórar Fréttablaðsins, Þorsteinn Pálsson og Jón Kaldal, og 365 miðlar voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sýknaðir af meiðyrðakæru sem Hjalti Árnason höfðaði gegn þeim. Krafðist Hjalti þess að ummæli sem birtust í Fréttablaðinu á síðasta ári yrðu dæmd dauð og ómerk og að fá greiddar 10 milljónir króna í miskabætur.

Hjalti krafðist þess að  eftirfarandi ummæli sem birtust í Fréttablaðinu 8. október 2007 verði dæmd dauð og ómerk. ,,Kraftlyftingamenn sem vilja ekki lyfjapróf þröngvuðu formanni sínum frá völdum.“

,,Ekki hafi verið vilji fyrir því meðal áhrifamanna í sambandinu vegna þess að því myndu fylgja regluleg lyfjapróf“

,,...í raun eru tveir menn sem stjórna eiginlega öllu. Þar á hún við þá Auðun Jónsson og Hjalta Úrsus Árnason, en hvorugur þeirra situr í stjórn sambandsins.“

Í umdeildri frétt kemur fram að Jóhanna Eiríksdóttir hafi viljað að kraftlyftingamenn sæktust eftir aðild að Íþrótta og Ólympíusambandi Íslands, en ekki hafi verið vilji fyrir því meðal áhrifamanna í sambandinu vegna þess að því myndu fylgja regluleg lyfjapróf. Í beinu framhaldi segir í fréttinni að stjórnin hafi ekki fylgt formanninum að málum og þá hafi skipstjórinn ekkert að gera í brúnni lengur. Jafnframt segir í beinu framhaldi, innan tilvitnunarmerkja: Þeir eru ekki mikið fyrir breytingar þarna og í raun eru tveir menn sem stjórna eiginlega öllu“. Þá segir í beinu framhaldi að þar eigi Jóhanna við þá Auðun Jónsson og Hjalta Úrsus Árnason en hvorugur þeirra sitji í stjórn sambandsins.

Segir í niðurstöðu héraðsdóms að óumdeilt sé að Hjalti er þekktur kraftlyftingamaður. „Í fréttinni sjálfri er ekki greint frá því að stefnandi hafi verið á þeim fundi sem fréttin greinir frá, en við meðferð málsins kom það fram. Þótt stefnandi sé nafnkunnur kraftlyftingamaður og hafi verið á fundi þeim sem greint er frá í fréttinni, beinast hvorug ofangreindra ummæla sérstaklega að honum, heldur að ótilgreindum hópi kraftlyftingamanna sem voru á fundi þessum.

Er ekkert í ummælum þessum sem tengir nafn stefnanda sérstaklega við þann hóp kraftlyftingamanna sem yfirfyrirsögnin greinir frá, og ekki er gerð grein fyrir í fréttinni hverjir þeir áhrifamenn í Kraftlyftingasambandi Íslands eru, sem ekki hafi viljað ganga í ÍSÍ. Nafn stefnanda kemur þar hvergi við sögu og verður ekki talið að stefnandi geti fengið ómerkt ummæli sem þannig beinast að ótilgreindum hópi manna.

Sú óljósa tenging stefnanda við ofangreind tvenn ummæli, sem hann telur felast í síðustu ummælunum sem hann krefst ómerkingar á: Í raun eru tveir menn sem stjórna eiginlega öllu. Þar á hún við þá Auðun Jónsson og Hjalta Úrsus Árnason, en hvorugur þeirra situr í stjórn sambandsins” lýsir aðeins þeirri skoðun viðmælanda blaðsins, að þeir Auðunn Jónsson og stefnandi stjórni eiginlega öllu í Kraftlyftingasambandinu, en jafnframt kemur fram í fréttinni að hvorugur þeirra sitji í stjórn sambandsins.

Skoðanir manna, sem ekki eru settar fram á ærumeiðandi hátt, eins og síðastgreind ummæli, verður að telja innan marka þess tjáningarfrelsis sem varið er af 72. gr. stjórnarskrárinnar," að því er segir í niðurstöðu héraðsdóms.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Blár Ópal í Hörpu í gær. Hljómsveitina skipa þeir Franz Ploder Ottósson, Pétur Finnbogason, Agnar ...

„Þjóðin valdi okkur“

18:31 „Þjóðin valdi okkur, það er mjög gaman að vita af öllum þessum stuðningi almennings,“ sagði Franz Ploder Ottósson, einn fjórmenninganna í Bláum ópal, eftir að fréttir bárust um að lagið þeirra, Stattu upp, hefði fengið flest atkvæði í símakosningunni í Söngvakeppni Sjónvarpsins í gær. Meira »
Kristmundur Axel Kristmundsson, syngur með Bláum ópal í Hörpu í gærkvöldi.

Blár ópal fékk flest atkvæði

18:16 Lagið Stattu upp í flutningi strákasveitarinnar Blás ópals fékk flest atkvæði í símakosningu Söngvakeppni Sjónvarpsins í gærkvöldi. Lagið fékk 700 fleiri atkvæði en lagið sem vann, Mundu eftir mér. Meira »

Gæslan bíður eftir skýrslu

Þór á siglingu.
17:56 Sérfræðingar á vegum Rolls Royce reyna nú að finna orsök bilunar í nýju varðskipi Landhelgisgæslu Íslands sem kom til hafnar í Bergen í Noregi sl. miðvikudagskvöld. Meira »

Ók á ljósastaur

17:29 Umferðaróhapp varð á Laugarnesvegi um kl. 14 í dag. Lögreglan fór á staðinn en ökumaður bifreiðarinnar hafði ekið á ljósastaur. Enginn slasaðist en bíllinn er skemmdur og óökuhæfur. Var hann fjarlægður af slysstað með kranabifreið. Meira »

Hjartað í tónlist en höfuðið í lækningum

Magni Ásgeirsson söng lag Sveins Rúnar, Hugarró, af mikilli innlifun.
16:12 Síðustu vikurnar hefur lagahöfundurinn Sveinn Rúnar Sigurðsson, sem átti tvö lög í úrslitakeppni Söngvakeppni sjónvarpsins í gærkvöldi, starfað við lækningar á Heilsugæslunni í Árbæ á daginn og sinnt undirbúningi Evróvisjón á kvöldin. Meira »

Vilja nýtt kúakyn til Íslands

Arnar Bjarni Eiríksson, sem rekur eitt stærsta kúabú landsins í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
17:49 Bændurnir í Gunnbjarnarholti og á Skáldabúðum vilja flytja inn nýtt kúakyn til landsins sem allra fyrst. Arnar Bjarni Eiríksson, sem rekur bæði búin ásamt konu sinni Berglindi Bjarnadóttur, segir nýtt kúakyn vera forsendu þess að kúabændur geti þróað mjólkurframleiðslu sína. Meira »

Hundur fastur í neti

Hundur af border collie-kyni.
17:13 Lögreglan fékk í morgun tilkynningu um hund sem var fastur í netadræsum við Ægisgarð. Lögregla og tækjabíll frá slökkviliði fór á vettvang. Búið var að bjarga hundinum úr netunum og var hann frekar þjakaður en glaður björguninni. Meira »

Mikið annríki á Læknavaktinni

15:33 Mikið annríki hefur ríkt á Læknavaktinni um helgina, og nánast stöðugur straumur fólks. Sökum þessa hefur biðtími lengst og kalla þurfti út lækna bæði í gær og í dag. Upplýsingar um hvað helst er að hrjá landann liggja þó ekki fyrir. Meira »

Nálgast 30.000 undirskriftir

Skorað er á forsetann að gefa áfram kost á sér til embættis.
15:19 Undirskriftum fjölgar enn á vefsíðunni Áskorun til forseta þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að gefa áfram kost á sér til embættis í komandi forsetakosningum. Meira »

Bæta við strætóferðum á Suðurlandi

Mjóddin er upphafs- og endastaður Suðurlandsstrætósins.
15:10 Frá og með deginum í dag verða gerðar nokkrar breytingar á akstri Strætó bs. á Suðurlandi. M.a. verður bætt við hádegisferð frá Reykjavík á Selfoss og til baka til Reykjavíkur, tekinn upp akstur í Reykholt og bætt við ferð frá Vík til Hafnar á þriðjudögum. Meira »

Kjörin formaður Sambands ungra framsóknarmanna

Ásta Hlín Magnúsdóttir
15:18 Ásta Hlín Magnúsdóttir var í dag kjörin nýr formaður Sambands ungra framsóknarmanna. Ásta Hlín fékk 32 atkvæði eða 53%. Mótframbjóðandi hennar, Ragnar Stefán Rögnvaldsson, fékk 28 atkvæði eða 47%. Meira »

Gæði röntgenmynda margfaldast

Lesið úr röntgenmyndum á Landspítalanum í Fossvogi. Mynd úr safni.
15:06 Tekinn hefur verið í notkun stafrænn búnaður til framköllunar á röntgenmyndum á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga. Þessi nýju tæki koma í stað gamalla tækja sem voru úr sér gengin og nær ónýt. Meira »

Nefbrotinn eftir árás

Maðurinn var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl.
15:04 Karlmaður var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala snemma í morgun eftir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu sagðist maðurinn hafa orðið fyrir árás tveggja manna sem hann kunni ekki deili á, ekki hefur tekist að hafa uppi á þeim. Maðurinn er talinn nefbrotinn. Meira »

Börnin uppgötva undraheima Legó

Börnin skemmtu sér hið besta við að búa til alls kyns byggingar úr kubbunum.
14:05 Gríðarleg umferð hefur verið í Ráðhúsi Reykjavíkurborgar um helgina en þar er sýningin Undraheimar Legó sett upp. Yngstu kynslóðinni gefst þar kostur á að gleyma sér framkvæmdum með fjölmarga Legó-kubba. Meira »

SUF vill draga ESB-umsóknina til baka

13:34 Samþykkt var á 37. þingi Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) í morgun að aðildarviðræðum við Evrópusambandið yrði hætt og umsókn Íslands um aðild að sambandinu dregin til baka. Meira »

17 kýr mjólkuðu yfir 10 þúsund kíló

14:50 Þær voru duglegri að mjólka í fyrra, kýrnar í Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu, en árið á undan. Í fyrra mjólkuðu sautján kýr yfir 10 þúsund kíló en árið 2010 voru þær aðeins fimm. Meira »

Evrópusambandið kynnir sig sjálft

Fánar Evrópusambandsins fyrir utan höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar sambandsins í Brussel.
13:35 Sérstök upplýsingaskrifstofa um Evrópumál, sem fengið hefur heitið Evrópustofa, var opnuð við Suðurgötu í Reykjavík í síðasta mánuði en markmið hennar er að miðla hlutlægum upplýsingum til Íslendinga um Evrópusambandið og kosti og galla þess fyrir Ísland að ganga í sambandið. Meira »

Vilja efla siðferði í stjórnmálum

Þingmenn Hreyfingarinnar standa að Breiðfylkingunni.
12:53 Stofnfundur Breiðfylkingarinnar hófst á hádegi en að henni standa Borgarahreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn, Hreyfingin og einstaklingar úr stjórnlagaráði. Í kjarnastefnu fylkingarinnar segir að leysa verði skuldavanda heimilanna og efla siðferði í stjórnmálum. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Flygill til sölu
Fallegur flygill til sölu. Lengd 150 cm. Ný yfirfarinn, mjög gott hljóðfæri. Ás...
Polaris Fusion 2006 600 cc
Allur yfirfarinn. 121" x 15" x 36.mm, negling - Brúsgrind - Handahlífar. Með sna...
FLOTT EINTAK AF NISSAN PATROL FRÁBÆRT VERÐ
Er með svakalega flott eintak af Nissan Patrol GR DIESEL, ekinn aðeins 78.000 sé...
Terrano II ´97
Mjög góður Terrano II til sölu sjá nánar hér... http://www.jakinn.is/?vara=terra...
 
Þerapisti
Sérfræðistörf
BARNAVERNDARSTOFA STARF ÞERAPISTA Í ...
Skipstjóri
Önnur störf
Skipstjóri Skipstjóri ...
Stúkan hekla
Félagsstarf
mHekla 6012020619 IV/ V...
I.o.o.f.7
Félagsstarf
I.O.O.F.7.[192080271/2[F.L....