Um 150 milljarða bakreikningur
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is
Útlit er fyrir að um 150 milljarðar króna falli á íslenska skattgreiðendur vegna uppgjörs þrotabús Landsbankans. Kröfuhafar á bankann, aðrir en innstæðueigendur, geta ekki búist við að fá greitt. Þetta var opinberað nýlega á fundi skilanefndar bankans með 8-10 hópum kröfuhafa.
Takist ekki að selja eignir fyrir innlánum bankans munu íslenska ríkið, Holland og Bretland tapa fé vegna trygginga á innistæðum á Icesave-reikningunum í útibúum bankans. Munurinn gæti numið ríflega þrjú hundruð milljörðum króna og áðurnefndir 150 milljarðar lenda þá á íslenska ríkinu. Þetta staðfestir Lárus Finnbogason, formaður skilanefndar Landsbankans, en segir tölurnar þó óljósar. „Sérstaklega þegar litið er til eignanna. Við höfum sett upp áætlanir. Seldum við allt á brunasölu núna fengjust sennilega innan við 50% af því sem hugsanlega fengist biðum við í fimm ár.“
Hann vill ekki fara nákvæmlega yfir þær tölur sem nefndar voru á fundinum með kröfuhöfum. „Við báðum kröfuhafana að skrifa undir yfirlýsingu um að upplýsingarnar væru í trúnaði. Við verðum að halda þann trúnað.“
Vilja neyðarlögunum hnekkt
Lárus segir viðbúið að kröfuhafar fari í mál við ríkið til þess að hnekkja neyðarlögunum sem sett voru í október. Þau færðu þá aftar innlánseigendum; þ.e. innstæðutryggingasjóðum landanna þriggja, í forgangsröðinni að fjármununum í bönkunum. „Þeir hafa ekki hótað því ennþá, nei,“ segir hann. „Það mun örugglega verða síðar.“Hann segir að kröfuhöfum hafi átt að vera ljóst í hvað stefndi. Í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, IMF, frá því í nóvemberlok hafi staðið skýrum stöfum að ekki væru líkur á að eignir Landsbankans dygðu fyrir innstæðum. „Hafi þeir lesið skýrsluna, sem þeir hafa örugglega gert, átti þeim að vera þetta ljóst.“
Næsti fundur með kröfuhöfum verður seinni hluta janúarmánaðar.
Bloggað um fréttina
-
Júlíus Björnsson Vitnisburður um mat á eiginfé -
Ólafur Ingi Hrólfsson 150 milljarða ránið -
Heimir L Fjeldsted Björgólfur og launagreiðslur -
Friðrik Hansen Guðmundsson Hver má veðsetja þjóðina? -
Skúli Guðbjarnarson Enn bætir í óhugnaðinn
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 21. febrúar 2009, Innlent Afskrifa 1.500 milljarða
- Þriðjudagur, 9. júní 2009, Innlent Útlánin eiga að greiða Icesave
- Þriðjudagur, 30. desember 2008, Innlent Togast á um Icesave-kjör
- Mánudagur, 22. júní 2009, Innlent Ísland fær helming eigna Landsbankans
- Mánudagur, 14. september 2009, Innlent Kröfuhafar Glitnis fá tvo kosti
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































