Reykjavíkurborg greiðir SI verðbætur
Borgarráð staðfesti í fundi sínum fyrr í dag samkomulag við Samtök iðnaðarins (SI) vegna brostinna samningsforsendna. Í samkomulaginu felst að Reykjavíkurborg greiðir SI hluta verðbóta á óverðtryggða verksamninga. Fulltrúar minnihlutans gagnrýna samkomulagið harðlega.
Í fréttatilkynningu frá borginni kemur fram að samkomulagið feli í sér að Reykjavíkurborg greiðir 5% verðbætur á óverðtryggða samninga eða helming umframhækkunar verðlags á móti fyrirtækjunum á árinu 2008. "Samkomulagið tryggir að fyrirtæki segi sig ekki frá verkum með tilheyrandi kostnaðarauka fyrir Reykjavíkurborg auk þess sem Samtök iðnaðararins fyrir hönd umbjóðenda sinna falla frá kröfu um málssókn á hendur borginni vegna brostinna samningsforsendna."
Óskar Bergsson, formaður borgarráðs og framkvæmda- og eignaráðs, segir samkomulagið við Samtök iðnaðarins tryggja áframhald mikilvægra verkefna og eyða óvissu sem upp er komin í samskiptum Reykjavíkurborgar við viðsemjendur sína.
„Við teljum að það séu klárlega hagsmunir borgarinnar að gera samkomulag með þessum hætti. Samkomulagið mun skapa grundvöll til að hægt verði að ljúka verkefnunum og koma í veg fyrir fyrirsjáanleg málaferli,“ segir Óskar.
Spurður hvort hann telji samkomulagið standast jafnræðisreglu stjórnsýslurétta svarar Óskar því játandi og og tekur fram að afstaða meirihlutans byggist á því að borgin hafi áður verðbætt samninga með þessum hætti.
Aðspurður hvort ekki sé erfitt fyrir borgina að greiða svo háa fjárhæð á sama tíma og skera þurfi niður í rekstri borgarinnar svarar Óskar því játandi. „Við reynum í raun að komast til móts við ótrúlega marga í þeirri fjárhagsvinnu sem við erum búin að vera í og við munum gera betur grein fyrir því í stefnuræðu borgarstjóra um fjárhagsáætlunina sem flutt verður nk. mánudag þegar fyrri umræða um fjárhagsáætlunina fer fram,“ segir Óskar.
Brýtur gegn jafnræðisreglu
Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, greiddi atkvæði á móti tillögunni. Í bókun hennar á fundinum segir:
„Samningurinn sem er lagður fram hér til afgreiðslu gerir ráð fyrir 250 milljón króna útgjöldum borgarsjóðs í þágu verktaka sem gerðu tilboð í verk á vegum borgarinnar eftir 1. mars 2008. Ekki verður séð að samkomulagið sé byggt á sanngirnissjónarmiðum, enda eru verðbætingar aftur í tímann við einn aðila umfram aðra í því ástandi sem nú ríkir illa réttlætanlegar. Auk þess stinga 250 mkr aukaútgjöld í þágu verktaka í stúf, nú þegar leitað er allra leiða til hagræðingar.
Málið hefur oft komið inn á borð borgarráðs og hlotið misjafnlega góð viðbrögð. Þann 6. maí 2008 lét meirihlutinn bóka á fundi innkauparáðs að ekki væri með góðu móti hægt að fallast á þau sjónarmið að forsendur fyrir samningum sem í gildi eru, væru brostnar nema að fengnum verðbótum. Á sama fundi bókaði minnihlutinn að varhugavert væri fyrir borgina að verðtryggja verksamninga, enda gæti það ýtt undir almennar verðhækkanir og vandræði fyrir aðra smærri verkkaupa.
Í ágúst var lagt fram bréf í borgarráði frá fjármálaskrifstofu þar sem ekki var talið heimilt að endurskoða og taka upp verðbótaákvæði í stuttum verktakasamningum með tilvísun til útboðsreglna og jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar. Ennfremur taldi fjármálaskrifstofan slíka endurskoðun ekki vera fýsilega fyrir borgina út frá samkeppnissjónarmiðum.
Nú, í desember, er skyndilega talið eðlilegt, þrátt fyrir framangreint álit fjármálaskrifstofu, að semja um verðbætur aftur í tímann við Samtök iðnaðarins. Eftir stendur spurningin um hvort gjörningurinn samræmist útboðsreglum borgarinnar og jafnræðisreglu stjórnsýsluréttarins, enda eiga samskonar sjónarmið víðar við í borgarkerfinu.
Ljóst er að Samtök iðnaðarins eiga fleiri, sterkari og háværari talsmenn en fulltrúar áfangaheimila, Stígamóta, foreldrafélaga eða sjúklingasamtaka. Kjörnir fulltrúar verða alltaf að gæta jafnræðis við ákvarðanatöku, og verða að standast þrýsting stærstu og sterkustu hagsmunahópanna. Það samkomulag sem hér liggur fyrir við einn stóran hagsmunaaðila umfram aðra, ber þess engin merki.“
Lýsir andstöðu við samkomulagið
Í fréttatilkynningu sem Ólafur F. Magnússon, borgarráðsfulltrúi F-lista, sendi frá sér kemur fram að hann gagnrýni harðlega þetta nýja samkomulag meirihlutans við SI. Í bókun hans kemur fram:
„Ég lýsi andstöðu minni við þetta samkomulag og þá forgangsröðun sem í því felst á sama tíma og velferðar- og grunnþjónustan í borginni þarf að sæta verulegum skerðingum. Útlit er fyrir að þeir sem síst mega við því og bera síst af öllum ábyrgð á núverandi kreppuástandi í íslensku samfélagi þurfi að taka á sig stærstu byrðarnar.
Ég átel því forgangsröðun Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í þessu máli sem á öðrum vettvangi Borgarstjórnar Reykjavíkur. Ég vísa jafnframt í tillögur mínar varðandi unglingasmiðjunar Tröð og Stígur. Þær hafa ekki fengið afgreiðslu í borgarráði og ekki hefur verið horfið frá ákvörðun um fækkun stöðugilda og þjónustuskerðingu hjá áðurnefndum unglingasmiðjum.“





































