Ólafur Ragnar fer fram á launalækkun

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. stækka

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. mbl.is/RAX

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi fjármálaráðherra bréf fyrir helgi þar sem hann fer fram á að laun forseta Íslands verði lækkuð á sama hátt og laun ráðherra og forseta Alþingis.

Bréfið sem Ólafur sendi Árna M. Mathiesen er eftirfarandi:

„Í samræmi við frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 47/2006 um Kjararáð, sem nú er til meðferðar á Alþingi og varðar lækkun launa ráðherra og annarra ráðamanna vegna hins mikla vanda sem nú steðjar að þjóðinni, fer ég fram á að laun forseta Íslands verði lækkuð á sama hátt og laun forsætisráðherra og forseta Alþingis, handhafa forsetavalds.

Það bann við skerðingu kjara forseta á kjörtímabili hans semkveðið er á um í 2. mgr. 9. gr. stjórnarskrárinnar var sett til að vernda forsetann gagnvart löggjafar- og framkvæmdavaldinu. Þetta ákvæði kemur hins vegar ekki í veg fyrir að forsetinn óski sjálfur eftir launalækkun þegar þjóðarhagur kallar á lækkun launa fjölmargra annarra ráðamanna og Alþingi setur lög þar um. Við slíkar aðstæður er bæði sjálfsagt og eðlilegt að hið sama gildi um forsetann.

Því sendi ég yður, hæstvirtur fjármálaráðherra, hér með formlega
ósk um slíka sambærilega lækkun launa forseta Íslands.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Frá vettvangi á Hverfisgötu.

Handtekinn vegna sprengjumáls

17:41 Karlmaður var handtekinn á Suðurnesjum í dag í tengslum við rannsókn lögreglu á sprengju sem fannst við Hverfisgötu í Reykjavík á síðasta degi janúarmánaðar. Samkvæmt heimildum mbl.is var einnig lagt hald á bifreið. Yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar vildi ekki tjá sig um málið. Meira »

Náð samkomulagi um vaxtabætur

17:35 Fulltrúar Landssamtaka lífeyrissjóða og stjórnvalda hafa náð samkomulagi um hlutdeild lífeyrissjóðanna í fjármögnun á sérstökum vaxtabótum. Samkvæmt því munu lífeyrissjóðirnir styðja við framkvæmd áætlunar um að aflétta gjaldeyrishöftum. Sjóðirnir munu m.a. taka þátt í gjaldeyrisútboðum Seðlabanka Íslands á komandi mánuðum. Meira »

Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi

Héraðsdómur Reykjaness.
17:28 Héraðsdómur Reykjaness féllst í morgun á kröfu lögreglu höfuðborgarsvæðisins um framlengingu gæsluvarðhald yfir karlmanni á þrítugsaldri sem stakk annan um fertugt í Kópavogi aðfaranótt föstudagsins 3. febrúar sl. Maðurinn verður í haldi til 9. mars nk. Meira »

Keppt í hugviti myndskeið

Verkfradakeppni
17:04 Í dag fór fram Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands. Í ár var nýtt fyrirkomulag á keppninni þar sem tvö lið öttu kappi samtímis en markmiðið var að setja niður fána á miðri braut þar sem hraði og nákvæmni búnaðarins sem nemendur smíðuðu skipti öllu máli. Meira »

Margt um manninn á Bessastöðum

Bílum er lagt meðfram heimreiðinni að Bessastöðum.
16:17 Margir hafa ákveðið að grípa tækifærið og heimsækja Bessastaði og Bessastaðakirkju sem eru opin almenningi í dag milli kl. 16 og 20. Opnunin er í tilefni Safnanætur og Vetrarhátíðar í Reykjavík. Meira »

Á fimmta tug umsókna um starf

Innanríkisráðuneytið er til húsa við Sölvhólsgötu 7, gegnt Seðlabankanum.
17:17 Umsækjendur um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu fjármála og rekstrar í innanríkisráðuneytinu eru 44. Embættið var auglýst laust til umsóknar 6. janúar og rann umsóknarfrestur út 26. þess mánaðar. Meira »

Greiddi fyrir vændi barns

16:50 Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt karlmann í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að greiða 14 ára pilti fyrir kynferðismök. Maðurinn játaði sök. Meira »

Tilraunaverkefni í vinnumiðlun

Samningurinn var undirritaður í dag.
16:14 Í dag var undirritað samkomulag um að setja í gang tilraunaverkefni sem hefur að markmiði að auka og efla vinnumiðlun, ráðgjöf og þjónustu við atvinnuleitendur. Það mun ná til um 25% atvinnuleitenda á landinu. Stefnt er að því að verkefnið hefjist í byrjun maí. Meira »

Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu

Frá stofnfundi Samstöðu, stjórnmálaflokks undir forystu Lilju Mósesdóttur.
16:06 Stéttarfélagið Samstaða í Húnavatnssýslum gerir athugasemd við nafn nýs flokks Lilju Mósesdóttur sem ber nafnið Samstaða.  Meira »

Stefna að opnun í Skálafelli

Stefnt er að því að opna í skíðasvæðið í Skálafelli.
16:03 Borgarráð hefur samþykkir að beina því til stjórnar skíðasvæðanna að hefja viðræður við skíðadeild KR um að deildin sjái um rekstur svæðisins. Meira »

Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna

Séð yfir Skeiða- og Gnúverjahrepp.
16:04 Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur samþykkt að lækka starfshlutfall oddvita og að ræða við Kristófer Arnfjörð Tómasson viðskiptafræðing, um að taka að sér framkvæmdastjórastöðu hjá sveitarfélaginu. Meira »

Boðuð á fund í Reykjavík

Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir
16:00 Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa reynt að fá Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, norður á fund vegna alvarlegra stöðu í byggðamálum. Samtökin hafa nú verið boðuð á fund í Reykjavík ásamt öðrum fulltrúum landshlutasamtaka. Meira »

Skipulagsmálum víða áfátt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
15:57 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að ekki sé rétt að hús hafi verið rifin í borginni Bakú í Aserbaídsjan vegna byggingar Kristalshallarinnar. Hann segir að nóg sé að fara í miðbæ Reykjavíkur til að finna fólk sem búi í óvissu um nánasta umhverfi sitt og í grennd við hús sem séu látin drabbast niður. Meira »

Ekið á stúlku á Akureyri

15:38 Ekið var á stúlku á Mýrarvegi á Akureyri um hádegisleytið í dag. Stúlkan sagði við bílstjórann að hún væri ómeidd og hélt hann því leiðar sinnar. Skömmu síðar kom í ljós að hún var með minniháttar meiðsli á fæti. Meira »

Bjóða brúðhjónunum til Íslands

15:25 Iceland Express ætlar að bjóða breskum brúðhjónum til Íslands en parið varð fyrir því að brotist var inn hjá því á brúðkaupsnóttina og peningum sem ætlaðir voru í brúðkaupsferð til Íslands stolið. Brúðurin fór að gráta af gleði er hún fékk símtalið frá Iceland Express. Meira »

Bleikjueldi ekki háð umhverfismati

15:47 Eldi á allt að 200 tonnum af bleikju á ári í Galtalæk, Rangárþingi ytra, er ekki háð mati á umhverfisáhrifum að mati Skipulagsstofnunar. Íslensk matorka rekur fiskeldisstöðina í Galtalæk. Meira »

Karl biskup í Kenía

Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands.
15:34 Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands hefur undanfarna tvo daga heimsótt starfssvæði íslenskra kristniboða í Pókothéraði í Keníu ásamt Jónasi Þórissyni framkvæmastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar. Meira »

Um 65% með leka púða

Búið er að skoða um 100 konur sem eru með PIP-púða.
15:16 Rúmlega 100 konur sem erum með PIP-brjóstapúða eru búnar að koma í ómskoðun hjá Krabbameinsfélaginu. Um 65% þeirra eru með leka púða. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Cavalier King Charles Spaniel til sölu
Erum með yndislega Cavalier til sölu. Frábærir fjölskylduhundar. Sími 5668417 ww...
Toyota LC120 VX 10/05 ek.125 þús
Átta manna, 35" breyttur ný dekk , dráttarkúla , sóllúga og fl. Dekurbíll einn e...
BÍLSKÚR / GEYMSLUHÚSNÆÐI
TIL LEIGU TÆPIR 30 FERMETRAR Á AFGIRTU, MALBIKUÐU OG VÖKTUÐU SVÆÐI. HITI, VATN O...
Travel King 585 hjólhýsi til sölu 2004
Kojur öðrumegi og hjónarúm hinum megin Isabella Fortjaldi Nánari uppslýsingar í...
 
Ríkiskaup útboð

*Nýtt í auglýsingu    â€...
Tæknimaður
Iðnaðarmenn
Mainstream Norway A/S er fiskeldisfyrirt...
Grafískur hönnuður
Augl-/almannatengsl
Tækifæri fyrir snjallan hönnuð E N ...
Sölu- og markaðsstjóri
Sölu/markaðsstörf
Hótel Reynihlíð er 4 stjörnu hótel ...