Frestun frumvarps um RÚV misráðin

mbl.is/Ómar

Ákvörðun menntamálanefndar um að fresta afgreiðslu frumvarps um Ríkisútvarpið ohf. var afar misráðin að mati Viðskiptaráðs.

Menntamálanefnd Alþingis ákvað nú fyrir helgi að fresta afgreiðslu frumvarps um RÚV, sem fól m.a. í sér takmarkanir á heimild stofnunarinnar til sölu auglýsinga. Nefndin taldi nauðsynlegt að tillögur um takmörkun RÚV á auglýsingamarkaði yrðu útfærðar nánar af þeim starfshópi sem starfað hefur á vegum menntamálaráðuneytisins. Að auki lagði nefndin til að hópurinn myndi samhliða þeirri vinnu leggja fram tillögur að reglum um eignarhald á fjölmiðlum.

Að mati Viðskiptaráðs var þessi ákvörðun menntamálanefndar afar misráðin.

„Það liggur fyrir, m.a. í áliti Samkeppniseftirlitsins, að þátttaka RÚV á auglýsingamarkaði hefur haft skaðleg áhrif á einkarekna fjölmiðla. Hvað það varðar skiptir litlu hvort reglur um eignarhald á fjölmiðlum hafi verið settar og er því um tvö óskyld mál að ræða. Viðskiptaráð hvetur Alþingi til að leiða í lög, strax eftir áramót, frumvarp sem tekur alfarið fyrir heimildir RÚV til að afla sér tekna með sölu auglýsinga, vöruinnskotunum og kostunum,“ segir í fréttabréfi Viðskiptaráðs.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert