Stefnt að hagræðingu á sviði öryggis- og siglingamála

Auka á hagræði og skilvirkni í rekstri ýmissa öryggisstofnana, t.d. …
Auka á hagræði og skilvirkni í rekstri ýmissa öryggisstofnana, t.d. Landhelgisgæslunnar. mbl.is/Kristinn

Ríkisstjórnin féllst hinn 16. desember sl. á tillögu Björns Bjarnasonar, dóms- og kirkjumálaráðherra, um að stefnt yrði að samþættingu verkefna og hagræðingu á starfssviði öryggis- og siglingamála.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu sem er send út í kjölfar forsíðufréttar Fréttablaðsins í dag þar sem fjallað er um sparnað í ríkisrekstri og sameiningu stofnana undir yfirskriftinni „Neyðarlínan og Gæslan spari og flytji á Keflavíkurflugvöll“.

Tekið er fram að dóms- og kirkjumálaráðuneytinu hafi veið falið að hafa  forgöngu um viðræður dóms- og kirkjumálaráðuneytis, samgönguráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis, sjárvarútvegsráðuneytis og utanríkisráðuneytis í því augnamiði að sameina krafta ríkisstofnana,  sem  tengjast siglingum, sjósókn, öryggi, löggæslu, eftirliti, sjúkra- og neyðarflugi sem og sjómælingum og rannsóknum í hafinu.

„Markmiðið er að auka hagræði og skilvirkni í rekstri þeirra stofnana sem hér um ræðir, en það eru einkum Landhelgisgæslan, Varnarmálastofnun, Siglingastofnun, Fiskistofa, Hafrannsóknarstofnun, Vaktstöð siglinga auk þeirra, sem sinna sjúkraflugi.

Með bréfi fjármálaráðuneytisins dags. 14. nóvember sl. er ráðuneytum falið að leita allra leiða til að draga úr ríkisútgjöldum með hliðsjón af forgangsröðun brýnustu verkefna og kjarnastarfsemi og huga að hagræðingu og skipulagsbreytingum eins og sameiningu stofnana.

Með samþættingu verkefna löggæslu- og öryggisstofnana dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og annarra stofnana  má að mati ráðuneytisins treysta öryggisviðbúnað hér á landi auk þess sem veigamikil fjárhagsleg rök mæla með því að starfsemi þessara aðila lúti samhæfðri stjórn.  Á það  einnig við um einstök verkefni er lúta að rekstri ratsjáreftirlitskerfa, tæknilegum rekstri gagnatenginga og greiningarstarfs sem og samskiptum við erlend öryggismálayfirvöld.

Með þeim viðræðum, sem nú fara í hönd á grundvelli tilmæla ríkisstjórnarinnar, takast ráðuneytin sameiginlega á við að móta leiðir til að tryggja sem best öryggi landsmanna og nýtingu opinberra fjármuna,“ segir í tilkynningunni frá dómsmálaráðuneytinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert