Óeðlilegt að atvinnurekendur sitji í stjórnum lífeyrissjóða

Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar - stéttarfélags telur óeðlilegt að atvinnurekendur sitji í stjórnum lífeyrissjóða. Þetta kemur fram í ályktun sem var samþykkt á aðalfundi stéttarfélagsins í gær.

Ályktunin er eftirfarandi:

„Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar- stéttarfélags telur óeðlilegt að atvinnurekendur sitji í stjórnum lífeyrissjóða. Fundurinn telur eðlilegt að lögum og reglum um starfsemi lífeyrissjóða verði breytt þannig að sjóðfélagar sem hafa hagsmuna að gæta skipi stjórnir lífeyrissjóða en ekki atvinnurekendur sem hafa annarra hagsmuna að gæta en að verja lífeyrissjóðsréttindi launafólks.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert