Margir vilja liðsinna
Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, minnti í hugvekju sinni á Trú.is í gær á það hve margir þyrftu nú á aðstoð að halda vegna kreppunnar. En jafnframt að það yki bjartsýni að sjá hve margir vildu liðsinna þeim sem væru þurfandi. Biskupinn predikaði í gærkvöld í Bústaðakirkju.
,,Ég kom á dögunum í Borgartún í Reykjavík þar sem jólaúthlutun Hjálparstarfs kirkjunnar, Mæðrastyrksnefndar og Rauða kross Íslands stóð yfir" sagði Karl í hugvekjunni. ,,Fjöldi sjálfboðaliða var þar á þönum við að fylla á poka og aðstoða fólk sem þurfti á aðstoð að halda fyrir þessi jól. Hjálparumsóknir frá 2300 fjölskyldum höfðu þá borist, fleiri en nokkru sinni og enn var að bætast við.
Það var í senn dapurlegt og ánægjulegt að verða vitni að þessu. Og það gaf von. Dapurlegt er að vita af öllum þeim fjölda fólks sem neyðist til að leita sér hjálpar. Ekki síst að sjá unga foreldra með lítil börn, og skynja þá neyð sem að baki býr. En gleðilegt að vita til að hægt er að koma til móts við þá neyð vegna svo ótrúlegrar velvildar og örlætis einstaklinga og fyrirtækja.
Sjálfboðaliðarnir eru úr ýmsum áttum og á ýmsum aldri, unglingar úr æskulýðsstarfi kirkjunnar þar á meðal, og starfsfólk Símans og Straums sem fékk frí til að taka þátt í úthlutuninni. Það var mikið að gera, ys og erill, en ánægja og þakklæti í ásjónum fólksins. Jólagleði er gleði gjafmildinnar, umhyggjunnar, kærleikans, sem lýkur upp hliðum vonarinnar um tíð og tíma þar sem þeir þættir fá að ráða í mannlífinu."
Biskup sagði m.a. í predikun sinni í gærkvöld að sjaldan hefði jólaguðspjallið verið áleitnara og rómsterkara en einmitt núna. ,,Á óvissutímum og kvíða þurfum við virkilega að heyra og skynja og þiggja hin raunverulegu verðmæti og endurheimta hinn sanna auð, sem Guð býður okkur sem gjöf."
Bloggað um fréttina
-
Brynja Dögg Ívarsdóttir Jólagleði og hjálpsemi fyrir jólin -
Vilhjálmur Árnason Það er gott og blessað að lofa það sem linnar ... -
Haukur Nikulásson Jólakveðja - Hugleiðing um meðalhófið
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 12. desember 2007, Innlent Svissneskir verðir við innsetningu
- Þriðjudagur, 28. apríl 2009, Innlent Margir leita til kirkjunnar
- Mánudagur, 20. október 2008, Innlent Biskup vísiterar Landspítala
- Föstudagur, 1. ágúst 2008, Innlent Forsetinn settur í embætti
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































