Jólagjöfum skilað

Röðin við Hagkaup náði þvert yfir gang Kringlunnar og gott …
Röðin við Hagkaup náði þvert yfir gang Kringlunnar og gott betur. Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Talsverður erill var í Kringlunni í dag þegar fólk kom til að skipta jólagjöfum sínum. Margra metra löng röð myndaðist við þjónustuborð utan við efri hæð Hagkaupa þar sem fólk gat skilað og skipt jólagjöfum.

Þeir sem eru á höttunum eftir góðum tilboðum á útsölum þurfa þó að bíða ögn lengur því útsölur hefjast í Kringlunni 3. janúar næstkomandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert