Fer þokkalega af stað

Bankatertan er ein þeirra sem Landsbjörg býður til sölu fyrir …
Bankatertan er ein þeirra sem Landsbjörg býður til sölu fyrir áramótin. mbl.is/Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Flugeldasala Landsbjargar hófst í dag víða um land, en tiltölulega rólegt hefur verið á sölustöðum eins og venjan er á fyrsta söludegi. „Þetta fer þokkalega af stað,“ sagði Ólöf Snæhólm upplýsingafulltrúi Landsbjargar við  Fréttavef Morgunblaðsins.

Landsbjörg býður upp á þá nýjung að þessu sinni að hægt er að kveðja gamla árið með því að „sprengja“ stjórnmálamenn, útrásarvíkinga eða bankamenn - en seldar eru svokallaðar tertur með teikningum Halldórs Baldurssonar af viðkomandi, sem mikið hafa verið í fréttum síðustu vikurnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert