Vilja slíta samskipti við Ísraela

Palestínskur maður með lík fjögurra ára gamallar dóttur sinnar sem lést í árásum Ísraelsmanna á ... stækka

Palestínskur maður með lík fjögurra ára gamallar dóttur sinnar sem lést í árásum Ísraelsmanna á Gaza Reuters

Samtökin Ísland Palestína hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem árásir Ísraelsmanna á Gaza eru harðlega gagnrýndar.

„Grimmdarlegt framferði Ísraelshers gagnvart varnarlausum íbúum herteknu svæðanna á Gaza hefur náð nýju hámarki í fjöldamorðum síðustu daga. Með loftárásum árásarþyrla, orrustu- og sprengjuflugvéla hafa nú þegar 300 manns verið myrtir og árásirnar halda áfram.

Um sjö hundruð manns hafa særst og búast má við að tala fallinna og særðra eigi eftir að hækka eftir því sem tekst að grafa fólk upp úr rústum heimila sinna og annarra bygginga. Konur og börn hafa ekki verið undanþegin í þessum grimmilegu árásum. Skortur er á lífsnauðsynjum, lyfjum og lækningatækjum, rafmagni og vatni. Aðstæður þessar sem fara stöðugt versnandi vegna umsáturs Ísraelshers um Gazaströnd gera hjálparstarfi og heilbrigðisþjónustu erfitt fyrir.

Samkvæmt yfirlýsingum ísraelskra ráðamanna er þetta aðeins byrjunin á nokkurra vikna herferð sem hefur lengi verið í undirbúningi og því fráleitt að skella skuldinni á fórnarlambið eins og reynt hefur verið í öðrum yfirlýsingum Ísraelsstjórnar. Heimasmíðaðar Qassam-flaugar andspyrnuhópa sem skotið hefur verið frá Gaza og inn í Ísrael eru tylliástæða fyrir þeim miskunnarlausu fjöldamorðum sem heimurinn horfir nú uppá. Það hafa 1-2 manns fallið á ári fyrir heimasmíðuðu flaugunum sem geta sannarlega valdið hræðslu í þeim byggðum sem þær ná til en eru, í samanburði við ísraelsku vígvélina, lítið meira en máttvana viðbrögð við ofurefli.

Hlé hafði verið í nokkra mánuði á skotum Qassam-flauga þegar gripið var til þeirra aftur i kjölfar árása Ísraelshers á Gaza kosninganóttina sem úrslit urðu kunn í forsetakosningum Bandaríkjanna og augu heimsbyggðarinnar beindust að. Það var einum og hálfum mánuði áður en vopnahléið rann út. Ísraelsstjórn hafði hvorki virt hernaðarhluta vopnahlésins og enn síður þann hluta þess sem átti að vera að aflétta umsátrinu. Þessu vopnahléi var því sjálfhætt.

Það var kaldranalegt að heyra utanríkisráðherra Íslands í Ríkisútvarpinu leggja fórnarlömb stríðsins og árásaraðalinn að jöfnu með því að tala um deiluaðila sem báðir beri ábyrgð. Þó hafði hún áður lýst árásum Ísraelshers á Gazasvæðið sem óverjanlegum. Nær hefði verið að lýsa eindreginni samúð og stuðningi við hrjáða íbúa Gazasvæðisins en helmingur íbúa þess eru flóttafólk sem mátt hefur bíða lausnar á sínum vanda í 60 ár.

Íslenskum stjórnvöldum ber að krefjast þess af Ísraelsstjórn að hún láti af árásarstefnu sinni og fjöldamorðum á Gazasvæðinu, ella verði samskiptum við Ísraelsríki slitið þar til stjórnvöld þar í landi sýni vilja í verki til að fara að alþjóðalögum og samþykktum Sameinuðu þjóðanna og hætti þegar í stað öllu árásum á palestínska íbúa herteknu svæðanna," að því er segir í yfirlýsingu samtakanna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir.

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »
Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.

Ferry heillaði í Hörpu

00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
Í gær, 17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
Í gær, 16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
Í gær, 16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

Í gær, 15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
Í gær, 15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

Í gær, 15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
Í gær, 15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Toyota Yaris DIESEL árgerð 2006
Toyota Yaris Diesel árgerð 07/2006. Ekinn 79.000 km. Sjálfskiptur. 5 dyra. Silf...
Tilboð á CHIC sumar úrum www.smakaup.is
Töff sumarúr í glæsilegum tískulitum hægt að panta hér http://www.smakaup.is/pro...
15 FM SUMARHÚS
15 fm sumarhús úr þéttum viði â€" fæst me...
Til sölu Ford Ekonline húsbíll ... 350 þús!!!:)
Til sölu Ford Econoline húsbíll árg. '90, sjálfsk. ek. 149 þús. sex cl. bensín l...
 
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...