Arðsemismat Kárahnjúkavirkjunar endurskoðað
Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is
„Ég geri ráð fyrir að arðsemismat vegna Kárahnjúkavirkjunar verði endurskoðað í náinni framtíð, en það er eitthvað sem gert er reglulega. Það er ekkert nýtt að það sé endurskoðað heldur fullkomlega eðlilegt og sjálfsagt,“ segir Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar. Greint var frá því í Fréttablaðinu í gær að mögulega yrði arðsemismat Kárahnjúkavirkjunar endurskoðað. Það var endurreiknað úr 11,9 prósentum á eigið fé í 13,4 prósent í byrjun þessa árs.
Gera má ráð fyrir að endurskoðað arðsemismat verði nokkru lægra en það sem gert var ráð fyrir í byrjun ársins en þá var að heimsmarkaðsverð á áli að hækka hratt. Það náði hæstu hæðum í júlí á þessu ári. Staðgreiðsluverð á heimsmarkaði var þá um 3.300 dollarar en það er nú um 1.500 dollarar. Verð á áli hefur aldrei í sögunni lækkað eins hratt og á síðustu fimm til sex mánuðum.
Arðsemismat virkjunarinnar sem stuðst var við í upphafi gerir ráð fyrir að meðaltals heimsmarkaðsverð á áli sé um 1.550 dollarar á tonnið. Álverðið hefur bein áhrif á afkomu Landsvirkjunar þar sem sala á orku til álvera er bundin við heimsmarkaðsverð á áli.
Langtímaáætlanir Landsvirkjunar miða hins vegar ekki við staðgreiðsluverð á áli heldur framvirkt verð til lengri tíma. Það hefur enn haldist töluvert hærra en staðgreiðsluverðið, eða sem nemur 20 til 30 prósentum samkvæmt upplýsingum frá LME (London Metal Exchange). Verðið er þó misjafnt eftir lengd og eðli sölusamninga.
Töluverðrar óvissu gætir í áliðnaði í heiminum í ljósi mikilla verðlækkana á hrávöru, þar með töldu áli. Verðlækkanaferlið sem hófst um mitt ár stafar af hratt minnkandi eftirspurn í kjölfar mestu efnahagslægðar á heimsvísu í meira en heila öld. Óvissu gætir um hversu lengi hún mun vara en fæstar spár erlendra sérfræðinga, hjá fjármálastofnunum og bönkum, hafa gert ráð fyrir þeim miklu hremmingum sem einkennt hafa hrávörumarkaði undanfarna mánuði. Lægðin hefur reynst miklu dýpri en talið var.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 21. janúar 2008, Innlent Kárahnjúkavirkjun arðsamari
- Fimmtudagur, 4. desember 2008, Innlent Álið fallið úr 3.300 dollurum í 1.642
- Mánudagur, 8. desember 2008, Innlent Álið lækkar með olíunni
- Laugardagur, 18. október 2008, Innlent Fylgjast náið með niðursveiflu
- Föstudagur, 2. október 2009, Innlent Framkvæmdum við Kárahnjúkavirkjun lokið
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































