Hlutu viðurkenningu fyrir starf í þágu innflytjenda

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Halldóri Ho, Eddu Ólafsdóttur og félaginu Móðurmál viðurkenningu Alþjóðahúss „Vel að verki staðið“ fyrir lofsverða frammistöðu í málefnum innflytjenda á Íslandi við athöfn í Alþjóðahúsinu í dag.
 
Viðurkenningunni, sem nú er veitt í sjötta skipti, er ætlað að vekja athygli á jákvæðu starfi sem unnið er hér á landi í málefnum innflytjenda. Veittar voru viðurkenningar fyrir lofsverða frammistöðu í þremur flokkum: til einstaklings af erlendum uppruna sem hefur lagt sitt af mörkum til samfélagsins, til einstaklings af íslenskum uppruna sem hefur lagt sitt af mörkum til innflytjenda á Íslandi og til fyrirtækis, stofnunar eða félagasamtaka fyrir framlag til málefna innflytjenda og fjölmenningarsamfélagsins, að því er segir í tilkynningu.
 
 Halldór Ho

Halldór er fæddur í Víetnam og kom til Íslands í hópi flóttamanna árið 1979. Hann hefur unnið sem vélvirki, túlkur, þýðandi og nú síðast við tölvumál. Halldór lærði hagfræði í Víetnam áður en hann kom til Íslands. Hann útskrifaðist í vélvirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1984 og vann hjá Vélamiðstöð Reykjavíkur í 14 ár. Halldór var einnig viðriðinn veitingarekstur í nokkur ár en árið 1999 hóf hann nám á tölvufræðibraut  við Iðnskólann í Reykjavík. Tölvuorðabókina vann hann síðan hjá Mími á árunum 2006-2007.
 
Halldór Ho hefur gegnt mjög mikilvægu hlutverki varðandi málefni Víetnama á Íslandi á liðnum árum. Nýlega vann hann og gaf út í samstarfi við Mími víetnamska-íslenska tölvuorðabók. Starf hans við vinnslu orðabókarinnar sýnir þrautseigju hans og elju en hugmyndin að gerð tölvuorðabókarinnar vaknaði fyrst hjá honum fyrir tæpum 10 árum.
 
Edda Ólafsdóttir

Edda Ólafsdóttir er félagsráðgjafi hjá Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða og hefur starfað að málefnum innflytjenda í rúmlega 10 ár. Hún vann að stefnumótun Reykjavíkurborgar um málefni innflytjenda og hefur verið virk í samstarfsteymi um málefni innflytjenda. Edda kom að stofnun teymisins og hefur í starfi sínu sem félagsráðgjafi hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík og seinna Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða haft margvísleg tengsl við málefni innflytjenda. Málefni fjölskyldna og barna er henni sérstakt áhugamál.
 
Edda vann að móttöku flóttamanna frá Kólumbíu sem kom til landsins 2007 og hefur setið í ýmiss konar samstarfshópum um málefni innflytjenda innan og utan vinnustaðar síns. Þar má nefna sem dæmi Allar heimsins konur, hóp um málefni fjölskyldna, Norrænt-Eystrasaltsverkefni um úrræði til aðstoðar fórnarlömbum mansals o.fl.
 
Edda hefur auk þess komið að kennslu og fræðslu í Háskóla Íslands og Endurmenntun Háskóla Íslands um málefni innflytjenda.
 
Móðurmál

Móðurmál er félag um móðurmálskennslu tvítyngdra barna. Meginmarkmið félagsins er að gefa tvítyngdum börnum tækifæri til að læra og viðhalda eigin móðurmáli og menningu. Rannsóknir hafa sýnt fram á að börn sem fá að læra tungumál foreldra sinna eiga auðveldara með að læra nýtt tungumál, í þessu tilfelli íslensku. Móðurmál leitast við að styðja kennara félagsins, afla þekkingar á tvítyngi og hvetja foreldra sem eiga tvítyngd börn til að veita börnum sínum tækifæri til að kynnast eigin móðurmáli og menningu.
 
Móðurmálskennsla eða leiðbeiningar fyrir tvítyngd börn hefur verið í boði hér á Íslandi síðan árið 1993 en félagið Móðurmál var formlega stofnað árið 2001. Tilgangur félagsins var og er að þróa tungumálanám með skýrum markmiðum og námskrá. Námið er fjármagnað með skólagjöldum og styrkjum.
 
Námskeiðin sem haldin eru hjá Móðurmáli eru sérstaklega ætluð þeim börnum sem búa við tvö eða fleiri tungumál á sínu heimili. Móðurmál hefur boðið upp á námskeið í ensku, litháísku, rússnesku, spænsku, japönsku, arabísku, kínversku, pólsku, tælensku og hollensku. Kennarar, stjórn og faglegir leiðbeinendur eru allir í sjálfboðavinnu.
 
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BENZ JEPPI ML 430 skoða skipti
Til sölu MERCEDES BENZ ML 430 árg.'99 ek.117 þúsund mílur Sjálfskiptur, leður, l...
Lightroom námskeið 11.og 13. júní 2012
Grunn námskeið í Lightroom. Kennd verða allir helstu verkferlar og á helstu aðge...
Húsnæði óskast til leigu - 120fm-200fm
Leita að húsnæði fyrir tvö yfir fimmtugt - róleg og reglusöm. Óska eftir íbúð...
Hænsnahús til sölu
Til sölu heimili fyrir landnámshænur. Einangrað og klætt að innan. Varpkassar og...
 
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...