Íslendingur stýrir starfi Rauða krossins á Gaza
Alþjóða Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn hafa vart undan við að aðstoða særða á Gazasvæðinu. Mikið öngþveiti ríkir á sjúkrahúsum þar sem erfitt er að annast allan þann fjölda særðra borgara sem leitar sér aðhlynningar. Pálína Ásgeirsdóttir hjúkrunarfræðingur og einn reyndasti sendifulltrúi Rauða kross Íslands á átakasvæðum stýrir aðstoð Alþjóða Rauða krossins við sjúkrahús á herteknu svæðunum.
Um 350 manns hafa látið lífið í árásum Ísraelshers, og að minnsta kosti 1.000 manns hafa særst, samkvæmt upplýsingum frá Rauða krossinum.
„Ástandið er gífurlega alvarlegt. Lyfjabirgðir sjúkrahúsa eru næstum uppurnar. Unnið er á gjörgæslu- og skurðstofum allan sólarhringinn. Forgangsverkefni Alþjóða Rauði krossins er að aðstoða sjúkrahús á Gazasvæðinu. Síðustu tvo daga hefur Alþjóða Rauði krossinn dreift nauðsynlegum birgðum til heilbrigðisstofnana svo sem sáraumbúðum, deyfi- og verkjalyfjum, blóði, blóðvökva og öðrum hjálpargögnum.
Alþjóða Rauði krossinn áminnir stríðandi fylkingar að fara eftir alþjóðlegum mannúðarlögum þar sem bannað er að beina árásum að óbreyttum borgurum og valda þeim óbærilegum skaða. Stríðandi fylkingum ber að vernda óbreytta borgara og virða reglur Genfarsamninganna í hvívetna.
Samstarf Rauða kross Íslands við Rauða hálfmánann í Palestínu hófst árið 1993. Félagið hefur stutt verkefni á svæðinu síðan og hefur meðal annars notið framlaga frá íslenska ríkinu. Frá árinu 2002 hafa Rauði kross Íslands og Rauði krossinn í Danmörku unnið að verkefni um sálrænan stuðning við palestínskt börn á aldrinum 10-12 ára til að hjálpa þeim að takast á við áhrif stríðsátaka á daglegt líf," að því er segir í tilkynningu.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 8. janúar 2009, Innlent RKÍ sendir 10 milljónir króna til Gasa
- Þriðjudagur, 26. ágúst 2008, Innlent Rauði krossinn sendir fulltrúa til Pakistan
- Þriðjudagur, 8. janúar 2008, Innlent Rauði krossinn sendir 3 milljónir til Kenýa
- Föstudagur, 16. janúar 2009, Innlent RKÍ fordæmir árásir á sjúkrahús og vöruhús á Gaza
- Miðvikudagur, 16. desember 2009, Innlent Utanríkisráðuneytið styrkir Rauða krossinn
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































