Annmarkar, en leiða ekki til ógildingar
„Umboðsmaður telur annmarka á þessu en þó ekki meiri en svo að hann telur að þeir leiði ekki til ógildingar," sagði Árni Mathiesen við Morgunblaðið í kvöld, í tilefni þeirrar niðurstöðu umboðsmanns alþingis að annmarkar hefðu verið á því hvernig staðið var að skipan í embætti héraðsdómara í fyrra.
Árni skipaði Þorstein Davíðsson í embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra í desember í fyrra, en umboðsmaður komst að þeirri niðurstöðu í dag að annmarkar hafi verið á undirbúningi, ákvörðun og málsmeðferð Árna, sem setts dómsmálaráðherra.
Þorsteinn var tekinn fram yfir þrjá aðra umsækjendur, sem dómnefnd mat hæfari til verksins.
Þorsteinn hafði áður gengt starfi aðstoðarmanns Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra sem vék sæti við skipunina af þeim sökum. Í áliti umboðsmanns er vísað til þess rökstuðnings Árna að umsögn dómnefndarinnar hefði verið ógagnsæ, lítt rökstudd og innra ósamræmi hafi verið í mati hennar á starfsreynslu umsækjenda. Því hefðu verið vandkvæði á því að reisa ákvörðun um skipun í embættið alfarið á umsögninni. Segir umboðsmaður m.a. að ráðherra hefði átt að óska eftir að dómnefndin fjallaði að nýju um málið og gæfi honum nýja umsögn þar sem bætt væri úr þessum annmörkum áður en hann tók ákvörðun í málinu. Einnig hefði verið rétt að óska eftir að nefndin skýrði frekar hvað hefði ráðið mati hennar á starfsreynslu eins umsækjandans, sem aðstoðarmanns dóms- og kirkjumálaráðherra, í samanburði við mat á annarri starfsreynslu.
Árni sagðist í kvöld álíta síðastnefndu atriðin nýmæli; að ef skipunaraðili teldi umsagnaraðila ekki skila nægilega góðu verki þá ætti hann að senda málið aftur til baka. „Ég mun láta skoða þetta. Það getur vel verið að einhver atriði í stjórnsýslunni megi vera öðruvísi,“ sagði ráðherra.
Bloggað um fréttina
-
Gunnar Skúli Ármannsson Fyrir hvern er Ráðherrann? -
Sigurður Þórðarson Óréttmæt gagnrýni á Árna Mathiesen -
Guðbjörn Jónsson Er það léttvægt að ráðherra brjóti sjórnarskrá ????? -
Hörður B Hjartarson Ógildingar ! -
Hrannar Baldursson Eru einhverjir annmarkar á skáldaleyfi* fjármálaráðherra? -
Anna Guðný Og hvað svo? -
Haraldur Bjarnason Allt í lagi Árni -
Ólafur Ragnarsson Leyfist ráðherrum allt???
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. desember 2008, Innlent Annmarkar á skipun dómara
- Fimmtudagur, 27. mars 2008, Innlent Svar Árna M. Mathiesen til umboðsmanns Alþingis
- Föstudagur, 2. október 2009, Innlent Athugasemdir við málsmeðferð við ráðningu orkumálastjóra
- Þriðjudagur, 20. janúar 2009, Innlent Augljóst að farið var á svig við stjórnsýslulög
- Fimmtudagur, 28. febrúar 2008, Innlent Skrifleg meðmæli höfðu áhrif á skipun dómara
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































