Vilja hefja hvalveiðar á ný

Félagsfundur í Félagi skipstjórnarmanna samþykkti í dag að skora á sjávarútvegsráðherra, Einar Kr. Guðfinnsson, að sjá til þess að hvalveiðar verði hafnar á ný. 

Segir í ályktun fundarins að við þær aðstæður sem nú  ríkja í þjóðfélaginu, veiti ekki af því að sjálfbærar veiðar séu leyfðar úr öllum þeim stofnum sem til þess eru bærir.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert