Fortíðartengslin rofin

stækka

mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Morgunblaðið Eftir Þórð Snæ Júlíusson - thordur@mbl.is

Fimm starfsmönnum Kaupþings var sagt upp störfum í gær og fyrradag, þar af þremur framkvæmdastjórum og einum forstöðumanni. Þau eru Bjarki Diego, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs og fyrrverandi nefndarmaður í skilanefnd gamla Kaupþings, Guðný Arna Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar, Þórarinn Sveinsson, framkvæmdastjóri eignastýringar, Jónas Sigurgeirsson, forstöðumaður upplýsingarsviðs, og Benedikt Sigurðsson upplýsingafulltrúi.

Verið að rjúfa tengsl

Heimildir Morgunblaðsins herma að nokkrar ástæður hafi legið að baki uppsögnunum. Í fyrsta lagi hafi hópur stjórnenda sem enn var að störfum í Kaupþingi verið mjög nátengdur Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni bankans, og Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra hans.

Sá hópur starfsmanna hafi myndast á upphafsárum Kaupþings og verið mjög samheldinn.

Með því að segja upp hluta þess hóps hafi verið send ákveðin skilaboð innandyra í bankanum um hvernig nýir stjórnendur hans hyggjast taka á málum og að slíta ofangreind tengsl.

Þá þótti einnig nauðsynlegt að senda skilaboð út á við til þjóðfélagsins um að enginn innan bankans væri ósnertanlegur í sínu starfi heldur gengju nýir stjórnendur bankans fram af festu í mál og segðu stjórnendum upp ef ástæða þætti til.

Auk þess hefur PriceWaterhouseCoopers lokið við gerð skýrslu um rannsókn á starfsemi Kaupþings á síðustu mánuðum fyrir hrun íslenska bankakerfisins. Henni á að skila til Fjármálaeftirlitsins í dag.

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins mun eitt og annað koma þar fram sem hægt er að setja spurningarmerki við, þó ekki sé þar með sagt að það tengist þeim einstaklingum sem sagt var upp í gær.

Skýrslum skilað í dag

Rannsókn óháðra aðila á starfsemi hinna föllnu íslensku banka síðustu mánuðina fyrir bankahrun er að mestu lokið. Endurskoðendafyrirtækin PriceWaterhouseCoopers, sem rannsakaði Kaupþing, og Deloitte, sem rannsakaði Landsbankann, eiga að skila skýrslum um rannsóknir sínar til Fjármálaeftirlitsins (FME) í dag.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Ell og Nikki frá Aserbaídjan unnu Evróvisjón í fyrra.

Taki ekki þátt í Evróvisjón

20:08 Ung vinstri græn leggja til að Ísland dragi sig út úr Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í ár og nýti þá fjármuni sem við verjum í að senda keppendur út til að efla tónlistarkennslu hér heima fyrir. Meira »

Lá nakinn í blóðpolli

19:58 Héraðsdómur Vesturlands hefur sýknað mann af ákæru um húsbrot og sérstaklega hættulega líkamsárás í júní síðastliðnum. Þegar lögregla kom að lágu árásarmaðurinn og nakið fórnarlambið í blóðpolli á gólfinu. Meira »

Fundu fíkniefni og fjármuni

19:14 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann 300 grömm af amfetamíni við húsleit í íbúð í Hafnarfirði á föstudag og lagði jafnframt hald á verulega fjármuni, eða um eina og hálfa milljón króna. Meira »

Ræddu stöðu mannréttindamála

Thomas Hammarberg og Ögmundur Jónasson ræddust við í dag.
18:43 Mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins, Thomas Hammarberg frá Svíþjóð, er í heimsókn hér á landi og átti meðal annars viðræður við Ögmund Jónasson innanríkisráðherra. Ræddu þeir bæði stöðu mannréttindamála á Íslandi og á alþjóða vettvangi. Meira »

Lúmsk ísing á vegum

18:12 Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við að nú síðdegis frystir víða við yfirborð og myndast lúmsk ísing þar sem vegir eru blautir, einkum sunnan- og vestalands. Meira »

Kannabisræktun í Kópavogi

80 kannabisplöntur fundust við húsleit.
19:10 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi í gær. Við húsleit fundust um 80 kannabisplöntur, flestar á lokastigi ræktunar, og um 1,4 kg af marijúana. Meira »

EasyJet til Íslands allt árið

easyJet
18:37 Breska lággjaldaflugfélagið EasyJet hefur ákveðið að fljúga áfram á milli Íslands og Lundúna næsta vetur. Er sú ákvörðun að fljúga til Íslands allt árið tekin þar sem flugleiðin hefur fengið góðar viðtökur. Meira »

Takmarkanir verði á auglýsingum

Útvarpshúsið við Efstaleiti.
18:04 Í drögum nefndar á vegum menntamálaráðherra um endurskoðun laga um RÚV er m.a. lagt til að settar verði takmarkanir á sjónvarpsauglýsingar, sem munu skerða tekjur RÚV af birtingu auglýsinga um 15%. Meira »

Evróvisjón í skugga kúgunar?

Margir hafa áhyggjur af stöðu mannréttindamála í Aserbaídsjan.
17:29 Senn líður að hinni árlegu Evróvisjónkeppni. Nokkur styr stendur um keppnina í ár, sem verður haldin í Aserbaídsjan, en þar þykir pottur víða brotinn í mannréttindamálum. Mannréttindasamtök segja tjáningar- og félagafrelsi takmarkað og samkynhneigðir Aserar sæta áreitni lögreglu og stjórnvalda. Meira »

Krafðist að dómari viki vegna óvildar föður

Hæstiréttur
16:41 Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem kröfu manns um að dómari viki sæti var hafnað. Maðurinn byggði kröfu sína á meintri óvild látins föður dómara í garð látins föður stefnda. Meira »

Bæta þarf eftirlit með samningum

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur m.a. gert skuldbindandi samning við Ríkisútvarpið ohf.
17:06 Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gert fjölmarga samninga við aðila utan ríkisins um að þeir taki að sér verkefni gegn greiðslum. Ríkisendurskoðun telur að bæta þurfi eftirlit með framkvæmd samninganna sem og ýmislegt annað sem tengist umsýslu þeirra. Meira »

Margrét er sátt við flutning

Margrét Frímannsdóttir er sátt við flutning fangelsisstarfseminnar á Bitru í Flóahreppi að Sogni í Ölfusi.
16:32 „Sogn býður upp á marga góða kosti, við erum sátt við þennan stað,“ segir Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla-Hrauni, um þá hugmynd að flytja fangelsisstarfsemina á Bitru í Flóahreppi að Sogni í Ölfusi. Meira »

„Kemur ekki á óvart“

Sigurjón Þórðarson
16:24 „Þessi dómur kemur mér ekki á óvart,“ segir Sigurjón Þórðarson, formaður Frjálslynda flokksins, um niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Reykjavíkurborg beri að greiða Frjálslynda flokknum tæpar sjö milljónir króna sem greiddar voru til Borgarmálafélags F-listans sem Ólafur F. Magnússon, þáverandi borgarstjóri, hafði umráð yfir. Meira »

Miðar hægt en örugglega niður

Tveir Bretar voru sóttir á Vatnajökul í morgun. Þeir eru nú á leið niður af ...
16:15 Björgunarleiðangrinum á Vatnajökli miðar hægt en örugglega til byggða með Bretana tvo sem óskuðu eftir aðstoð í morgun. Slæm færð er á svæðinu og veður versnandi. Meira »

Frjálslyndi flokkurinn vann

Ólafur F. Magnússon fyrrverandi borgarfulltrúi.
15:46 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Frjálslynda flokknum í vil í dómsmáli sem reis vegna ágreinings um hver ætti að fá framlag Reykjavíkurborgar vegna framboðs til borgarstjórnar. Borginni er gert að greiða 6,7 milljónir, auk vaxta, til flokksins. Meira »

„Þetta er hræðilegt, ég er í áfalli“

Tómur skartsgripastandur í verslun Lauru Ashley.
16:16 Brotist var inn í verslun Lauru Ashley í nótt og þaðan stolið öllum skartgripum og öðrum vörum. Tvö önnur innbrot voru framin í verslunum í nágrenninu í nótt. Meira »

Nauðgunarmál enn í rannsókn

16:07 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur enn til rannsóknar nauðgunarkærur á hendur Agli Einarssyni. Í síðustu viku sendi ríkissaksóknari málið aftur til lögreglu til frekari rannsóknar. Sú rannsókn gengur ágætlega og á lögreglan von á að henni muni ljúka í lok næstu viku. Meira »

Varað við ísingu

15:43 Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við því hætta sé á að það myndist lúmsk ísing á vegum sunnan- og vestanlands nú síðdegis þegar fer að frysta á ný. Meira »
Finnur.is
Húsasmíðameistari.
Tek að mér smíði sumarhúsa. Get séð um frá sökkli að fullbúnu. Fagmennska uppl. ...
Shar Pei hvolpur
Þessi 10 vikna Shar Pei hvolpur (rakki) er tilbúinn til afhendingar til nýrra ei...
Kælimiðlar - hagstætt verð
Eigum allar helstu gerðir af kælimiðlum á lager, svo sem R404a og R134a. Beinn i...
Borðstofusett til sölu
Fallegt vel með farið borðstofusett úr norskri hnotu. Borðið er 105x175, stækkan...
 
Reykjavíkurborg deiliskipulag

Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingar...
Stúkan gimli
Félagsstarf
l Gimli 6012020619 III°...
Aðalfundur sálarrannsóknafélags íslands
Félagsstarf
Sálarrannsóknarfélag Íslands, stofn...
Aðalfundur félags sjálfstæðismanna í skóga- og seljahverfi

Aðalfundur félags sjálfstæðismanna í S...