Gott flugeldaveður í kvöld

Flugeldar yfir Perlunni í Öskjuhlíð.
Flugeldar yfir Perlunni í Öskjuhlíð. Golli /Kjartan Þorbjörnsson

Vel viðrar til áramótabrenna og flugelda í kvöld á öllu landinu, samkvæmt veðurfræðingi hjá Veðurstofu Íslands. Hvassast verður í Vestmannaeyjum eða austan 10-15 m/s.

Þá verður strekkingur meðfram suðvesturströndinni að Keflavík en á að lægja með kvöldinu. Á höfuðborgarsvæðinu verður austan 5 m/s og háskýjað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert