Utanríkisráðherra hvetur til friðarviðræðna

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og heiðursfélagi Friðarráðs palestínskra og ísraelskra kvenna, tekur undir kröfuna um að árásum Ísraelshers verði þegar í stað hætt og að friðarviðræður verði hafnar að nýju þegar í stað með þátttöku Friðarráðsins.

Ingibjörg Sólrún hvetur almenning, ríkisstjórnir, alþjóðastofnanir, fjölmiðla, alþjóðlega verkalýðshreyfingu og aðra til að gefa gaum yfirlýsingu Friðarráðsins um hernaðaraðgerðir Ísraela á Gaza-svæðinu.

Í yfirlýsingunni krefst friðarráð ísraelskra og palestínskra kvenna (IWC) þess að árásum Ísraelshers á Gaza-svæðinu, sem þegar hafa kostað hundruð mannslífa, verði hætt án tafar.

„Þetta blóðbað getur aðeins orðið til þess að ýta undir frekari átök og gerir að engu veikar vonir um frið milli Ísraelsmanna og Palestínumanna,“ segir í yfirlýsingu IWC.

Friðarráðið hvetur alþjóðasamfélagið, og einkum Kvartettinn, til að senda þegar í stað alþjóðlegt herlið á vettvang til að binda enda á þessa firru, vernda saklausa borgara og draga úr hinu slæma ástandi mannúðarmála á Gaza-svæðinu. Friðarráðið fer þess einnig á leit við Kvartettinn, einkum næstu ríkisstjórn Bandaríkjanna, að hann þrýsti á um að friðarviðræður, byggðar á friðartillögu Arababandalagsins, verði hafnar að nýju þegar í stað sem er eina leiðin til að binda enda á hernámið og koma á varanlegum friði milli Ísraels og Palestínu, sem og á svæðinu öllu.

Tveir fulltrúar Friðarráðsins, frá Ísrael og Palestínu, komu til Íslands í febrúar sl. til að kynna stefnu ráðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert