Keflavíkurflugvöllur ohf. tekur til starfa

Kristján Möller, samgönguráðherra við nýtt merki Keflavíkurflugvallar ohf. stækka

Kristján Möller, samgönguráðherra við nýtt merki Keflavíkurflugvallar ohf. Mynd vf/Hilmar Bragi

Opinbera hlutafélagið Keflavíkurflugvöllur tekur til starfa í dag en í því er sameinuð starfsemi Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.

Félagið er stofnað samkvæmt heimild í lögum sem samþykkt voru á Alþingi 30. maí. Samgönguráðherra fer með hlut ríkisins í félaginu og framkvæmd laganna. Forstjóri Keflavíkurflugvallar ohf. er Björn Óli Hauksson rekstrarverkfræðingur.

Nýja félagið tekur við rekstri, viðhaldi og uppbyggingu Keflavíkurflugvallar sem borgaralegs flugvallar auk hagnýtingar flugvallarsvæðisins í þágu öryggis- og varnartengdrar starfsemi svo og rekstri, viðhaldi og uppbyggingu flugstöðvarinnar. Félaginu er heimilt að standa að stofnun annarra félaga og fyrirtækja og gerast eignaraðili að öðrum félögum og fyrirtækjum. Þannig er félaginu heimilt að taka þátt í félagi sem ætlað væri að annast atvinnuuppbyggingu á nærsvæði flugvallarins.

Kristján L. Möller samgönguráðherra ýtti nýja félaginu úr vör við athöfn í dag og sagði m.a.: „Við höfum í höndunum öflugt fyrirtæki. Hér eru hæfir starfsmenn sem hafa í áraraðir sinnt krefjandi verkefnum og veitt góða þjónustu. Því verður haldið áfram og þó að við verðum að þola samdrátt um skeið er ég sannfærður um að aftur birti og að við getum nýtt krafta okkar, tæki og aðstöðuna hér til að þjóna flugi og ferðamönnum um ókomin ár.“

Keflavíkurflugvöllur er miðstöð alþjóðlegs millilandaflugs, búinn fullkomnum tækjum og þjónar öllum flugvélategundum. Þjónusta í flugstöðinni er framúrskarandi að mati alþjóðasamtaka flugvallarrekenda – Airports Council International – samkvæmt könnun sem samtökin gerðu meðal flugfarþega í mars 2008.

Flugstöðin er rómuð fyrir þægilega staðsetningu í miðju Atlantshafi og lenti í fyrsta sæti fyrir þægindi við að skipta um flug sem og aðgengi að verslunum og bankaþjónustu, í þriðja sæti fyrir öryggi og var almennt valin fimmta besta flugstöð í heimi í flokki flugstöðva með færri en 5 milljónir farþega

Starfsemi Keflavíkurflugvallar ohf. skiptist í sex svið; fjármálasvið, flugvallarsvið, flugleiðsögusvið, flugverndarsvið, viðskiptasvið og rekstrarsvið. Öryggisverðir sem annast vopnaleit og öryggisgæslu í flugstöðinni munu heyra undir hið nýja félag. Réttindi og skyldur starfsmanna flytjast í samræmi við lög um aðilaskipti. Fríhöfnin ehf. er dótturfélag Keflavíkurflugvallar ohf. og sér um rekstur fríhafnarverslana í flugstöðinni. Starfsmenn félaganna eru 400 og áætluð velta á þessu ári er ríflega tíu milljarðar króna.

Félaginu ber að virða og standa við þjóðréttarlegar skuldbindingar á sviði öryggis og varnarmála sem varða flugvallarsvæðið. Er utanríkisráðherra heimilt að beina fyrirmælum til félagsins um hagnýtingu flugvallarsvæðisins í þágu þeirra mála.

Fimm manna aðalstjórn félagsins skipa: Jón Gunnarsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Ellert Eiríksson og Pétur J. Eiríksson. Varamenn eru: Eysteinn Eyjólfsson, Guðlaug Finnsdóttir, Jón Norðfjörð, Björk Guðjónsdóttir og Magnea Guðmundsdóttir.

Ávarp samgönguráðherra

Nánar um Keflavíkurflugvöll

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Fallegur Snyrti og Nuddbekkur-Verð : 69.000 Sterkur - Ódýr- Fallegur. 5 ára ábyrgð
www.simnet.is/eirikurs/nuddbord.html S: 8626194. Borð með baki til að hækka og ...
Viðkvæmt að fara í frí frá hundinum?
Þekki það. Á tvo góða hunda og við gætum bætt við ljúflingnum þínum þegar þú fer...
Tækifæri
Toppurinn í kaffivélum í dag. Þitt eigið sælkera-kaffihús hvar sem er. Lífrænt ...
BÆKUR ,TÍMARIT,MATREIÐSLUBÆKUR OG LP. PLÖTUR TIL SÖLU
https://bland.is/messageboard/messageboard.aspx?badvid=28470738&showAdvid=284707...
 
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....