Óvíst um sjón eftir flugeldafikt
Fimmtán ára drengur liggur stórskaddaður á barnadeild Hringsins eftir flugeldaslys. Var drengurinn að fikta með skoteldapúður úr skotköku sem nefnist Víti og sprakk hún í höndunum á honum þann 30. desember sl. Drengurinn er með alvarlegan augnskaða á báðum augum og tvísýnt hvort hann haldi sjóninni.
Samkvæmt upplýsingum frá lækni á barnadeild Hringsins er ljóst að sjón piltsins verður aldrei jafngóð og fyrir slysið. Hann hefur legið inni síðan slysið varð og líklegt að hann muni þurfa að liggja inni á spítala í að minnsta kosti eina til tvær vikur til viðbótar, bæði vegna augnskaðans og bruna í andliti.
Fleiri slys, en þó öll minniháttar, hafa orðið vegna fikts með sömu skoteldatertutegund, samkvæmt upplýsingum frá Slysadeild Landspítala. Þá hafa einnig orðið slys í tengslum við notkun annarra skotelda.
Að sögn Eydísar Ólafsdóttur, augnlæknis á Landspítalanum, er það nánast undantekningarlaust að ungmenni, yfirleitt piltar, komi á spítalann með áverka eftir flugelda um áramót. Þó nokkrir hafi komið nú í kringum áramótin og mátti litlu muna með sjón þrettán ára gamals pilts sem einnig hafði verið að fikta með skotelda.
Eydís segir að unglingarnir taki úr Vítis-tertunum kínverja sem þau skjóta síðan upp. Vill hún vara foreldra og unglinga við þessu enda skelfileg brunasár sem geta myndast vegna púðursins í tertunum.
Bloggað um fréttina
-
Helgi Þór Guðmundsson Láttu þér batna vinur ! -
Haraldur Davíðsson Sprengiefni í heimagerðar sprengjur. -
Róbert Jóhannsson Setningaskipan 101 - uppfært -
Sigurður Bogi Sævarsson Óvenjulegt fjáröflunarstarf
Innlent »
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
- Boðuð á fund í Reykjavík
- Skipulagsmálum víða áfátt
- Bleikjueldi ekki háð umhverfismati
- Ekið á stúlku á Akureyri
- Karl biskup í Kenía
- Bjóða brúðhjónunum til Íslands
- Um 65% með leka púða
- Veita Hvít-Rússum aðstoð
- Áfallin staða A-deildar í plús
- Er hóflega bjartsýnn
- Fastur á Ódrjúgshálsi í nótt
- „Engin minnihlutastjórn“
- ESB og Noregur taki sér 90% makrílkvótans
- Kjarval lækkar vöruverð
- Fresta innheimtu hesthúsaskatts
- Jón Ásgeir: Engir peningar teknir úr Sólarsjóði
- Með ekkert nema fötin utan á sér
- Hvorki fordómar né hatursáróður
- Tekjur lífeyrisþega hafa lækkað
-
Skart stöðvað á leið úr landi
- Jónas Þór: Lögmenn og réttarríkið
- Amnesty með samstöðufund
- Fagna inntökuprófum
- Lukkulegir lottóvinningshafar
- „Líflínan liggur í gegnum flugvöllinn“
- 8 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás
- Furða sig á ummælum bæjarfulltrúa
- Boðið í heimsókn á þjóðarheimili
- Ögmundur gagnrýnir Sjónvarpið
- Samstaða er í skýjunum
- Páll Vilhjálmsson: Sértrúarsöfnuður
- Minni notkun, minna tjón
- Vilja áfram eiga aðild að stjórn lífeyrissjóða
- Erfitt að draga línuna
- Flughált í Flóanum
- Hefur ekki verið vísað til lögreglu
- Hálkublettir víða
- Sjö klukkustundir á sjúkrahús
- Soffía Anna: Lokun líknardeildar
- Maðurinn sætir geðrannsókn
- Eldri borgarar virkir á vinnumarkaði
- 3 nýir áfangastaðir Iceland Express
-
Brotinn en brattur brettakappi
- Þróunarmál rædd af ráðuneytisstjórum
- Margir vilja læra íslensku
- Séreignarsjóður skerðir ekki bætur
- Fundar áfram með Huang Nubo
- Styðja menntun í Úganda
- Lentu óvænt í heimafæðingu
- Samstaða með 21% fylgi
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 28. maí 2009, Innlent Reiðhjólaslys á Akureyri
- Mánudagur, 4. janúar 2010, Innlent Lagður inn með augnáverka
- Laugardagur, 31. maí 2008, Innlent Drengurinn alvarlega slasaður
- Föstudagur, 21. mars 2008, Innlent 15 ára ökumaður ók útaf
- Mánudagur, 14. júlí 2008, Innlent Hjólaði á bíl
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
-
Steinar Páll: Þetta var mjög gaman
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin
-
Klám í Köben?
-
Norðurljósin utan úr geimnum
-
Harry prins kominn með þyrlupróf
-
Eyjólfur: Vilja sýna sig og sanna
Aðalfundur félags sjálfstæðismanna í S...



































