8,5 milljónir í styrki gegn kynbundnu ofbeldi

Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálamálaráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálamálaráðherra. mbl.is/ Árni Sæberg

Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, veitti á nýliðnu ári tæpar 8,5 milljónir króna í styrki til félagasamtaka sem sinna forvarnaverkefnum gegn kynbundnu ofbeldi gagnvart konum og kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum eða veita þolendum aðstoð og stuðning.

Verkefnin sem um ræðir styðja við markmið áætlunar ríkisstjórnarinnar á þessu sviði og fjögurra ára aðgerðaáætlunar félags- og tryggingamálaráðuneytisins til ársins 2007 til að styrkja stöðu barna og ungmenna.

Styrkir til samtaka sem aðstoða þolendur kynbundins ofbeldis voru veittir Samtökum um kvennaathvarf, Stígamótum og Sólstöfum, kvennaathvarfs á Vestfjörðum.

Styrkir til forvarnaverkefna voru veittir samtökunum Blátt áfram til námskeiðahalds fyrir starfsfólk sem vinnur með fötluðum börnum og Þekkingarsetri styrktarfélagsins Áss til námskeiðahalds fyrir þroskaheft og heyrnarlaus börn og ungmenni.

Fimm fræðslurit fyrir fagstéttir

Ofbeldi í nánum samböndum – Orsakir, afleiðingar, úrræði er heiti nýútkominna fræðslurita fyrir fagstéttir sem félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur gefið út að tilstuðlan samráðsnefndar um aðgerðir gegn ofbeldi karla gegn konum í nánum samböndum. Markmið útgáfunnar er að efla fræðslu og þekkingu þeirra sem sinna og vinna með konum sem hafa verið beittar ofbeldi af nákomnum aðilum. Efnt var til kynningar á ritunum á fundi í Iðnó í dag.

Fræðsluritin eru fimm talsins. Eitt þeirra fjallar á almennan hátt um ýmsar staðreyndir varðandi ofbeldi gegn konum í nánum samböndum, rannsóknir sem gerðar hafa verið, birtingarmyndir ofbeldisins og afleiðingar þess. Þetta rit er einkum ætlað til kennslu. Hin ritin fjögur eru skrifuð með það að markmiði að nýtast tilteknum stéttum í starfi. Eitt ritanna er fyrir ljósmæður, annað fyrir aðrar heilbrigðisstéttir, þriðja fyrir starfsfólk félagsþjónustu og fjórða ritið er ætlað lögreglunni.

Höfundur ritanna er dr. Ingólfur V. Gíslason og vann hann efni þeirra í samráði við samráðsnefndina ásamt því að leita í smiðju fjölda sérfræðinga úr mörgum fagstéttum sem best þekkja til þessara mála.

Samráðsnefnd um aðgerðir gegn ofbeldi karla gegn konum í nánum samböndum sem stóð fyrir útgáfu ritanna er skipuð af félags- og tryggingamálaráðherra og hefur starfað frá árinu 2003 að ýmsum verkefnum til að sporna gegn ofbeldi á heimilum, kynferðislegu ofbeldi sem beinist að konum og til að bæta aðbúnað þeirra sem orðið hafa fyrir ofbeldi eða teljast í áhættuhópi hvað þetta varðar. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar frá dóms- og kirkjumálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, menntamálaráðuneyti, félags- og tryggingamálaráðuneyti, Jafnréttisstofu og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert