Segja tillögur borgarstjóra jafngilda 5% niðurskurði
Oddvitar Samfylkingarinnar, Dagur B. Eggertsson, og oddviti Vinstri grænna, Svandís Svavarsdóttir, segja tillögu borgarstjóra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, um 2,5 milljarða niðurskurð jafngilda um 5% af rekstrarkostnaði Reykjavíkurborgar. Lokaumræða um fjárhagsáætlun borgarinnar verður í borgarstjórn í dag.
Í tilkynningu frá Degi og Svandísi kemur fram að borgarstjóri hafi lagt fram óútfærða tillögu að 2,5 milljarða niðurskurði á lokaspretti vinnu við undirbúning fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar, til að áætluninni mætti loka á núlli.
Þetta jafngildi niðurskurði sem nemur um um 5% af rekstrarkostnaði Reykjavíkurborgar og er sambærilegt við það ef helmingur af niðurskurði fjárlaga ríkisins væri enn óútfærður. Vandanum hefur því verið ýtt inn í árið.
„Minnihlutinn í borgarstjórn hefur gert skýra fyrirvara við þessi áform og vinnubrögð en ekkert samráð hefur verið haft við stéttarfélög, starfsfólk, samstarfsaðila borgarinnar eða fulltrúa notenda þjónustunnar. Með þessu telur minnihlutinn teflt í tvísýnu þeim yfirlýstu markmiðum að standa vörð um störf og grunnþjónustuna og að hækka ekki gjaldskrár," að því er segir í tilkynningu Dags og Svandísar.
Segja þau að í fjárhagsáætluninni sé jafnframt gert ráð fyrir sölu eigna fyrir milljarð og tekjum af úthlutun lóða og gatnagerðargjalda. „Hvoru tveggja getur brugðið til beggja vona. Ekki síst í ljósi þess að 7 milljarða framkvæmdir Reykjavíkurborgar sem fyrirhugaðar eru samkvæmt framkvæmdaáætlun eru í óvissu þar sem ekki hefur fengist lán til að fjármagna þær á ásættanlegum kjörum. Vonast er til að úr því glæðist þegar kemur fram á vorið. Minnihlutinn leggur til að framkvæmdaáætlunin verði stokkuð upp og forgangsraðað í þágu mannaflsfrekra verkefna og aðgerða í atvinnumálum."
Tillögur Samfylkingar og Vinstri grænna
Minnihlutinn í borgarstjórn leggur sameiginlega fram tillögur sem miða að því að draga úr óvissu í rekstri borgarinnar, standa vörð um þá sem lægst hafa launin og forgangsraða í þágu atvinnumála og mannaflsfrekra verkefna í ljósi ástands efnahagsmála.
„Borgarstjórn samþykkir að við útfærslu á sparnaði og samdrætti í yfirvinnu og öðrum launakostnaði sem áætlaður er allt að 1.300 milljónir króna samkvæmt tillögum borgarstjóra verði sérstaklega gætt að því að ekki dragi í sundur í launagreiðslum hjá Reykjavíkurborg heldur verði eitt af markmiðum útfærslunnar að stuðla að launajöfnuði. Það felist meðal annars í því að hópar og einstaklingar með heildarlaun sem eru undir 300.000 krónur á mánuði verði að jafnaði ekki af ofangreindum samdrætti.
Samráð við stéttarfélög, starfsfólk, samstarfsaðila og notendur þjónustu
Borgarstjórn samþykkir að við útfærslu og mat á raunhæfni einstakra tillagna um breytingar á þjónustu og niðurskurð verði þess gætt að náið samráð verði haft við stjórnendur, stéttarfélög og aðra fulltrúa starfsfólks, notendur þjónustunnar og foreldra eða forráðamenn, í tilviki barna. Ofangreint samráð er ekki síst mikilvægt þegar um er að ræða þann 2,5 milljarða viðbótarniðurskurð sem enn er óútfærður," að því er segir í tilkynningu.
Minnihlutinn leggur til að borgarstjórn samþykki að samhliða endurskoðun fjárhagsáætlunar verði framkvæmdaáætlun borgarinnar stokkuð upp sérstaklega og lögð fram að nýju fyrir 1. mars.
„Markmið breyttrar forgangsröðunar verði að fjármunir nýtist sem best fyrir þá sem standa höllustum fæti á vinnumarkaði. Við endurskoðunina verði því kannað sérstaklega hversu miklum fjármunum í framkvæmdaáætlun er skynsamlegt að verja til annarra átaksverkefna í atvinnumálum komi í ljós að þannig skapist fleiri störf fyrir sama fé."
Borgarstjórn samþykkir að við endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir verði sérstaklega hugað að kostnaði vegna félagslegra afleiðinga atvinnuleysis, átaksverkefna í atvinnumálum og frekari aðgerða í þágu atvinnumála ungs fólks. Sérstaklega verði hugað að þeim þjónustuþáttum sem verði fyrir auknu álagi og útgjöldum vegna efnahagshrunsins, s.s. starfsemi þjónustumiðstöðva, barnavernd og einstaka samstarfsaðila borgarinnar sem fá greitt gegnum þjónustusamninga, að því er segir í tillögu minnihlutans.
„Borgarstjórn samþykkir að við endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir 1. mars verði unnar tillögur að hagræðingu í húsnæðismálum þannig að 2-5% sparnaður náist á næstu þremur árum. Sérstaklega verði hugað að bættri nýtingu húsnæðis og endurskoðun dýrra leigusamninga við einkaaðila sem taka til sín mikið fé, s.s. Höfðatorg, Íþrótta- og sýningahöll og Egilshöll í Grafarvogi," að því er segir í tillögu minnihlutans.





































