Sömu tekjur af helmingi stærra búi

Anders Winqvist stækka

Anders Winqvist Morgunblaðið/Baldur

Finnski kornbóndinn Anders Winqvist hefur sömu tekjur og fyrir inngöngu landsins í Evrópusambandið, þrátt fyrir að 70 hektara býli hans sé 50 prósent stærra en fyrir inngönguna. Áður voru 10 bændur í nágrenninu, nú eru þeir aðeins þrír.

Að sögn Winqvist er skýringin einföld. Framlög Evróusambandsins til landbúnaðarins eru svo miklu lægri en opinberu styrkirnir áður að nauðsynlegt var að stækka býlin og helst að tvöfalda framleiðsluna til að fá sömu framlög og áður var.

Hlutur styrkja frá sambandinu í innkomu Winqvist, sem ræktar hveiti og malt, er á bilinu 50 til 60 prósent og þarf hann að gera grein fyrir hektarafjöldanum og hvað verið sé að rækta á landi hans. Að auki fari fulltrúar sambandsins yfir býlin á fimm ára fresti. Finni eftirlitsmenn misfellu í rekstrinum sé bændum refsað á þann hátt að næsta ár eru þeir ýmist aðvaraðir eða gengið svo langt að draga úr framlaginu til þeirra um einhver prósentustig.

Eins og gefur að skilja hefur þróunin leitt til fækkun bænda, hvort sem þeir hafa búfénað eða ekki, og segir Winqvist eina afleiðinguna þá að dregið hafi úr samtakamættinum. Það dragi úr hópeflinu þegar færri geti beit sér í réttindamálum bænda.

„Markaðirnir sem kaupa vörurnar af bændunum fá mestan hluta hagnaðarins af framleiðslunni. Markaðsmennirnir geta sagt við bændurna að ef þeir eru ekki ánægðir geti þeir allt eins keypt vörur frá Danmörku eða Þýskalandi," segir Winqvist.

Óvissa um framtíðina

Aðspurður um hvernig það sé að stunda búskap í þessu umhverfi segir Winqvist óvissu ríkja um landbúnað í heiminum, ekki aðeins innan ESB. Að sama skapi sé óvíst hver staða finnsks landbúnaðar væri ef landið hefði staðið utan við sambandið.

„Þegar finnskir bændur greiddu atkvæði um inngönguna í ESB mátti greina áhyggjur og ótta í þeirra röðum það hvert framhaldið yrði. Staðan er nú þannig að finnskir bændur geta ekki gert öruggar fjárfestingaráætlanir fyrir framtíðina," segir Winqvist og bendir á að nú sé aðeins ljóst hvert framhaldið verði fram að 2013, þegar núverandi landbúnaðartímabili ESB lýkur. Til að auka á óvissuna þá sé óvíst hversu lengi hvert tímabil vari og hvort og þá hvaðabreytingar verði gerðar á landbúnaðarstefnu sambandsins.

Inntur eftir afstöðu sinni til styrkjakerfis sambandsins kveðst Winqvist telja að færa megi rök fyrir því að miða eigi greiðslur í samræmi við framleiðni bænda, enda sé ljóst að í núverandi umhverfi fái síður duglegir bændur sömu styrki og aðrir miklu iðnari og vinnusamari.

Hitt beri að hafa í huga að ESB sé bandalag sem nái suður til Miðjarðarhafsins. Því sé ósanngjarnt að bera saman framleiðni í suður- og norðurhluta álfunnar. Framleiðnin sé minni í Finnlandi en á heitari svæðum Evrópu. Uppskerubrestur geti valdið þungum búsifjum í Finnlandi og segir Winqvist að framlagið frá ESB mildi höggið ef hart er í ári. Framlagið sé einskonar trygging.

Spurður um skoðun sína á þeirri þróun að framleiðslueiningarnar fari stækkandi segir Winqvist takmörk fyrir því hvað einn bóndi komist yfir mikla vinnu þegar einingarnar eru komnar í þennan stærðarflokk.

Stærri jarðir kalli á afkastameiri vélbúnað og aðstoðarfólk. Þróunin sé að hans mati ekki alslæm.

Skrifræðið til trafala í fyrstu

Hvað snertir skrifræðið sem fylgt hafi inngöngunni segir Winqvist það aðeins hafa verið vandamál til að byrja með þegar bændur voru ekki vissir um hvernig þeim bæri að bera sig að við útfyllingu eyðublaða.

Þetta hafi síðan komist upp í vana og bændur aðeins þurft að setja inn upplýsingar á kort og önnur skráningargögn í upphafi. Að því loknu hafi verið nóg að uppfæra gögn og tölur í tölvureiknum.

Starfsumhverfið líkist því um margt hlutabréfamarkaði, þar sem fylgjast þurfi með verðbreytingum á hverjum degi á tölvuskjánum. Landbúnaðurinn hafi því færst í þá átt að svipa til annarra greina viðskipta.

Winqvist dregur sýn sína á framtíð finnsks landbúnaðar innan ESB á þann veg að hvernig sem veröldin velti sér og snúi þurfi „á endanum allir að borða".

Býli Winqvist er í grennd við Tuusulsa, nálægt 61° breiddarbaug. Hann fær því ekki styrki ...

Býli Winqvist er í grennd við Tuusulsa, nálægt 61° breiddarbaug. Hann fær því ekki styrki á grundvelli heimskautalandbúnaðar. Morgunblaðið/Baldur

Finnskir bændur búa margir vel, t.d. Winqvist.

Finnskir bændur búa margir vel, t.d. Winqvist. Morgunblaðið/Baldur

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir.

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »
Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.

Ferry heillaði í Hörpu

00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
Í gær, 17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
Í gær, 16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
Í gær, 16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

Í gær, 15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
Í gær, 15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

Í gær, 15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
Í gær, 15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »
Finnur.is
Fleetwood Cheyenne (Resolute) 2006
Fleetwood Cheyenne 10 fet. Mjög vel með farið fellihýsi - lítið notað, nýskr. 20...
KENNI Á BMW 116I
Kenni á BMW 116i Snorri Bjarnason, sími 892 1451. Bilaskoli.is...
www.keyrsla.is Sendibílar
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Vörudreifing - fyrirtækjaflutningar. Öflug,G...
Handunnar vörur úr íslensku roði & leðri
Armbönd, símaveski, servíettuhringir, töskur o.fl. unnið úr íslensku roði og leð...
 
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...
Einstakt atvinnutækifæri
Til sölu
Einstakt atvinnutækifær...