Eygló vill embætti ritara
Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lýst yfir framboði sínu í embætti ritara flokksins. Áður hafði Sæunn Stefánsdóttir, núverandi ritari, lýst yfir að hún sæktist eftir endurkjöri.
Eygló segir að framsóknarstefnan og samvinnuhugsjónin hafi átt hug hennar og hjarta undanfarin ár.
„Ég tel miklu skipta að Framsóknarflokkurinn komi út af flokksþingi með skýra stefnu og sterka forystu, sem byggi á samvinnu, samstöðu og valddreifingu í samfélaginu. Fyrir rúmum níutíu árum tóku menn höndum saman til að berjast gegn fákeppni, einokun og kúgun auðvaldsins. Það var hlutverk Framsóknarflokksins við stofnun og það þarf að verða hans megin hlutverk að nýju,“ segir Eygló Harðardóttir.
Hún segir að í þeirri stöðu sem nú sé uppi í samfélaginu, sé ekki síður mikilvægt að standa vörð um hinar dreifðu byggðir landsins. Samþjöppun og fákeppni sé ekki bara af hinu slæma í atvinnulífinu, heldur einnig í búsetu þjóðarinnar. Landsbyggðin sjái nú fram á að verða á ný hjartað í íslensku atvinnulífi og tryggja þurfi samkeppnisstöðu hennar á þeirri leið.
„Að þessum verkefnum vil ég vinna og því hef ég ákveðið að gefa kost á mér til embættis ritara Framsóknarflokksins. Ég hef haft mikla ánægju af flokksstarfinu og samstarfi við félagsmenn í gegnum starf mitt sem ritari Landssambands Framsóknarkvenna, ritari Kjördæmissambands Framsóknarfélaganna í Suðurkjördæmi og gjaldkeri Framsóknarfélags Vestmannaeyja. Ég var í 4. sæti á lista Framsóknarmanna í Suðurkjördæmi fyrir tvennar síðustu alþingiskosningar og sat um tíma á Alþingi sem varaþingmaður.“
Eygló Harðardóttir tók sæti á alþingi í nóvember þegar Guðni Ágústsson sagði af sér. Ný forysta Framsóknarflokksins verður kjörin á flokksþingi Framsóknarflokksins helgina 16. til 18. janúar nk. Fjórir hafa lýst yfir framboði til formanns flokksins.
Bloggað um fréttina
-
Sóley Björk Stefánsdóttir Er ekkert pláss fyrir konur í formannsslagnum? -
Páll Höskuldsson Ný sókn hjá Framsókn
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 18. janúar 2009, Innlent Eygló Harðardóttir ritari
- Sunnudagur, 18. janúar 2009, Innlent Framsóknarmenn kjósa formann
- Sunnudagur, 18. janúar 2009, Innlent Niðurstöðu atkvæðagreiðslu beðið
- Mánudagur, 17. nóvember 2008, Innlent Eygló næst á lista
- Fimmtudagur, 29. janúar 2009, Innlent Samúel Örn horfir til heimasveitar
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































