Spiluðu knattspyrnu í bankanum

Hópur mótmælenda arkaði inn í afgreiðslusal Landsbankans.
Hópur mótmælenda arkaði inn í afgreiðslusal Landsbankans. mbl.is/Júlíus

Lítill hópur grímuklæddra mótmælenda fór inn í aðalútibú Landsbankans við Austurstræti og hóf að spila knattspyrnu í afgreiðslusalnum.

Öryggisverðir tóku fyrst boltann af fólkinu, sem fékk hann síðan aftur með því skilyrði að boltanum væri haldið á gólfinu. Setti fólkið síðan upp mörk á gólfinu en fór út með góðu stuttu síðar.

Starfsemi í afgreiðslusalnum lá að mestu niðri á meðan þessu fór fram og var lítið um viðskiptavini í bankanum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert