Þrír piltar sakfelldir fyrir kynferðisbrot

Héraðsdómur Suðurlands. stækka

Héraðsdómur Suðurlands. mbl.is

Héraðsdómur Suðurlands sakfelldi í dag þrjá unga pilta fyrir kynferðisbrot gegn tólf ára pilti. Refsingu var frestað í tvö ár en piltarnir voru dæmdir til að greiða fórnarlambi sínu 100 þúsund krónur í miskabætur.

Ákæra ríkissaksóknari á hendur piltunum var þingfest 18. ágúst en  brotin frömdu piltarnir 15. janúar 2008 í íþróttahúsi fyrir Austan fjall. Piltarnir voru ákærðir fyrir ólögmæta nauðung og kynferðisbrot með því að hafa í sameiningu neytt 12 ára gamlan dreng til að þola kynferðislega áreitni með lostugu athæfi. Ákærðu skiptu með sér verkum. Tveir piltanna tóku sér stöðu við hlið fórnarlambsins, héldu drengnum föstum og hindruðu för hans. Þriðji pilturinn leysti niður um sig buxurnar og beraði kynfæri sín fyrir drengnum og otaði þeim að andliti hans og sló hann með þeim ítrekað í andlit og hendur.

Piltarnir þrír játuðu allir brot sín fyrir dómi sögðu háttsemina ekki af kynferðislegum toga né lostugt athæfi heldur væri hún félagslegt fyrirbæri.

Í dómi héraðsdóms segir að sú háttsemi að fá beran getnaðarlim í  andlit eða á líkama, gegn vilja sínum, hljóti að brjóta gegn kynfrelsi einstaklingsins og teljast auk þess siðlaus háttsemi. Breyti þar engu um að sú háttsemi sé talin eðlileg af einstökum einstaklingum, hópum eða undir vissum kringumstæðum. Engu breyti heldur í þessu sambandi að ákærða hafi ekki risið hold á meðan atvikið átti sér stað eða að hann hafi talið háttsemina vera stríðni. Háttsemin hafi verið til þess fallin að hafa einhvers konar kynferðisleg hughrif hjá brotaþola. Að öðrum kosti hefði getnaðarlimur ekki verið notaður við framkvæmdina enda þótti brotaþola háttsemin ógeðsleg og hommaleg.

Að mati dómsins er ljóst að háttsemin telst vera kynferðisleg áreitni eins og það hugtak hefur verið skilgreint í íslenskum rétti. Dómurinn telur einnig ljóst að drengurinn sem fyrir árásinni varð, var beittur ofbeldi með því að halda honum á meðan einn þremenninganna sló getnaðarlim sínum að andliti og höndum hans.

Að mati héraðsdóms kemur það til þyngingar refsingar, að ákærðu frömdu kynferðisbrot gegn tólf ára gömlum dreng, en alkunna er að slík brot geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir þolanda og að um samverknað ákærðu var að ræða. Dómurinn tók hins vegar tillit til þess að drengirnir voru einungis 15 ára gamlir þegar þeir frömdu verknaðinn, þeir játuðu brotið greiðlega og þeim hefur ekki verið gerð refsing áður svo vitað sé.

Dómurinn taldi því rétt að fresta ákvörðun um refsingu yfir piltunum þremur og fellur hún niður eftir tvö ár, haldi piltarnir almennt skilorð.

Réttargæslumaður drengsins sem fyrir árásinni varð, krafðist 800 þúsund króna miskabóta. Bótakrafan ver rökstudd með þeim hætti að um sérlega niðurlægjandi árás hafi verið að ræða. Drengnum hafi fundist hann niðurlægður og svívirtur. Piltarnir þrír hafi valdið drengnum verulegum miska og óþægindum, a.m.k. af stórkostlegu gáleysi. Óljóst sé hvort árásin hafi varanlegar afleiðingar fyrir drenginn, en hún hafi haft í för með sér nokkra röskun á daglegum högum og lífi hans.

Héraðsdómur sagði ekki liggja fyrir gögn um afleiðingar háttsemi piltanna og taldi miskabætur hæfilega ákveðnar 100 þúsund krónur.

  • Til baka
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
SANDBLÁSTURFILMUR
Sandblásturfilmur í öllum stærðum og gerðum fyrir heimili og fyrirtæki. Sendið f...
Til sölu ljósakróna
Mjög vel með farin ljósakróna frá Home Art kr. 5000,- Upplýsingar í síma 6633-0...
Rúta
Rúta Iveco 20 farþega til sölu. Nýskráð 11/07 ekin 105.000 km. Upplýsingar í ...
Toyota Corolla 2006, sjálfskipt, ek. 41 þ., v. 1.950þ
Til sölu Toyota Corolla '06, ekin 41 þ., sjálfskipt, sjálfvirk miðstöð með loftk...
 
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...