Undirbúnir samningar um yfirtöku á tónlistarhúsinu
Eftir Fríðu Björk Ingvarsdóttur og Helga Bjarnason
Ólafur Elíasson, sem hannað hefur glerhjúp tónlistarhússins, segir samningaviðræður um húsið nú á erfiðu stigi – mjög margt sé óljóst í stöðunni. „Í fyrsta sinn er raunveruleg hætta á því að samningaviðræður um áframhaldandi byggingu hússins fari út um þúfur. Ég óttast að það leiði til þess að við sitjum uppi með rúst í miðborginni.“
Ólafur segir að slík rúst væri í fyrsta lagi hrikalegur vitnisburður um minni kröfur þjóðinni til handa og í öðru lagi minnisvarði um þá ógæfu sem dunið hefur yfir landið. „Staðreyndin er sú að alla þá peninga sem búið er að eyða í að semja um byggingu hússins verður að leggja fram að nýju ef samningaferlið þarf að endurtaka seinna. Mikið fjármagn hefur þegar verið sett í bygginguna og það mun allt tapast ef byggingarferlið stöðvast núna,“ segir Ólafur.
Hann telur eina ástæðu erfiðrar stöðu Íslands nú vera „hversu framganga Íslendinga í fjármálum hefur verið gríðarlega ágeng. Menn seildust mjög langt í því að hámarka hagnað sinn. Hvað tónlistarhúsið varðar felst í þessu þversögn, því einmitt vegna þessarar tilhneigingar tókst þeim sem sömdu um verð á verkþáttum tónlistarhússins að þrýsta verðinu niður. Þeim tókst að ná fram ótrúlega lágu verði á gæðaframleiðslu, eins og til að mynda í Kína þar sem glerhjúpurinn er framleiddur.“
Unnið hefur verið að yfirtöku ríkis og borgar á verkefninu undanfarna mánuði. Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Austurhafnar, er bjartsýnn á að það takist að koma framkvæmdinni af stað á ný og ljúka byggingu hússins án þess að bæta þurfi við framlag ríkis og borgar. Miðað er við að Austurhöfn eignist Portus sem tók að sér að byggja húsið í einkaframkvæmd. Uppbyggingin verði síðan fjármögnuð með láni sem tekið verði með veði í greiðslum sem ríki og borg hafa lofað að inna af hendi fyrir mannvirkið og rekstur þess næstu 35 ár. Samningarnir eru flóknir og miklir fjármuni í húfi og hafa því tekið sinn tíma. Stefán vonar að málið komist fljótlega á borð eigenda Austurhafnar sem eru ríki og borg.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 9. október 2008, Innlent Tónlistarhús í óvissu
- Mánudagur, 18. maí 2009, Innlent Tónlistarhús 650 millj dýrara
- Fimmtudagur, 19. febrúar 2009, Innlent Tónlistarhúsið fær grænt ljós
- Fimmtudagur, 5. febrúar 2009, Innlent Klára húsið með sóma
- Þriðjudagur, 10. mars 2009, Innlent Skoða áform um tónlistarhús
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































