Baktrygging tekin af starfsmönnum

stækka

Reuters

Morgunblaðið Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is

Bakábyrgð á eftirlaunasjóði 100 starfsmanna Glitnis og allt að fimm hundruð fyrrverandi starfsmanna, þeirra sem komnir eru á eftirlaun, varð eftir í gamla Glitni. Fimmtíu starfsmenn bankans áttu rétt á að fara fyrr á eftirlaun, samkvæmt svokallaðri 95 ára reglu, en nú er hætta á að þeir fái það ekki.

Anna Berglind Þorsteinsdóttir er trúnaðarmaður starfsmanna Glitnis og ein af þeim sem áætlaði að hætta fyrr að vinna. Hún er 51 árs og hefði getað hætt að vinna sextug samkvæmt umsömdum lífeyrisréttindum en sér nú fram á að þurfa að vinna fimm til sjö árum lengur. „Ég trúi því ekki að ákvörðunin sé endanleg.“

Réttindi starfsmannanna voru baktryggð, þannig að ytri áhrif og staða eftirlaunasjóðsins hafði ekki áhrif á greiðslur til þeirra. Þá voru eftirlaunin miðuð við lokalaun á starfsævinni en ekki útreiknuð meðallaun, svo eitthvað sé nefnt.

Hópurinn sem óttast nú skert réttindi er elstu starfsmenn Glitnis, en allir þeir sem ráðnir voru til fyrirrennara bankans eftir 1. janúar 1994 fóru í nýtt kerfi. Friðbert Traustason, framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, segir skammarlegt ætli ríkið að standa fyrir því að rýra réttindi þessara starfsmanna. Hann segir samtökin líta þannig á að um sjóðinn gildi kjarasamningar. „Þannig að við teljum að svona einhliða ákvarðanir standist ekki.“ Verði réttindin skert komi til málaferla.

Anna Berglind segir að verði ekki staðið við bakábyrgð sjóðsins hræðist þau að hann standi ekki undir réttindum fólksins. Það hafi sætt sig við lægri laun vegna þessara góðu eftirlaunaréttinda. „Fólk er hrætt. Hér eru konur sem fara á eftirlaun á árinu. Þær vita ekki neitt um stöðu sína. Við höfum ekki tíma til að vinna skerðinguna upp, því við erum fullorðin. En ég lifi í voninni um að þessari ákvörðun verði breytt.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Ný heilsársdekk Cooper M+s Sport fyrir 19" felgur
Er með fjögur heilsársdekk fyrir 19" felgur, Cooper M+s Sport Xl 255/50R19, ná...
BÆKUR ,TÍMARIT,MATREIÐSLUBÆKUR OG LP. PLÖTUR TIL SÖLU
https://bland.is/messageboard/messageboard.aspx?badvid=28470738&showAdvid=284707...
Toyota Avensis 1800, árg. 2006 5 gíra.
Fæst á aðeins 1200 þús. stgr. Ek. 175 þús. Gott lakk og vel með farinn bíll. E...
Uppsetning Innréttinga.
Láttu fagmann vinna verkið. Reynsla í í Brúnás framleiðslu. Einnig endurbætur ...
 
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...