Miklir annmarkar á ákvörðun Breta

Deilur vegna Icesave-reikninga Landsbankans munu væntanlega halda lengi áfram. stækka

Deilur vegna Icesave-reikninga Landsbankans munu væntanlega halda lengi áfram. Retuers

Verulegir annmarkar eru á þeim rökum og ástæðum sem ríkisstjórn Bretlands hefur upplýst að legið hafi að baki þeirri ákvörðun að kyrrsetja eignir Landsbankans í Bretlandi og aðgerðin var ekki til þess fallin að ná þeim markmiðum sem stefnt var að.

Þetta kemur fram í skýrslu, sem breska lögfræðistofan Lovells LLP hefur gert um ráðgjöf sína fyrir ríkisstjórn Íslands ráðgjöf varðandi hugsanlega málsókn á hendur breska ríkinu í þeim tilgangi að hnekkja kyrrsetningu fjármuna sem tengjast Landsbankanum.

Lögfræðistofan bendir hins vegar á, að ensk löggjöf veiti stjórnvöldum mikið svigrúm og væri mjög erfitt að fá ákvörðun breskra yfirvalda hnekkt fyrir breskum dómstól. Gildi þá einu hvort íslenska ríkið, eða aðrir sem hagsmuna eiga að gæta, höfði slíkt mál. Jafnvel þótt svo færi að breskur dómstóll myndi ógilda hina umdeildu ákvörðun yrðu mögulegar skaðabætur að líkindum ekki verulegar.

Lovells segir, að ákvörðun breskra stjórnvalda veki upp álitaefni sem lúti bæði að Evrópurétti og mannréttindum. Hvort tveggja kalli á ítarlega skoðun á því hvort ríkisstjórn Bretlands hafi með aðgerðum sínum brotið gegn meginreglum um meðalhóf. Úr slíkum álitaefnum mætti fá skorið fyrir breskum dómstólum. Aðild að slíkum málum gætu átt þeir einstaklingar, eða lögaðilar, sem urðu fyrir beinu tjóni af ákvörðun breskra stjórnvalda, til dæmis Landsbankinn.

Þá kunni íslenska ríkið hugsanlega einnig að geta höfðað mál gegn breska ríkinu fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Íslenska ríkið geti ekki borið fyrir sig mannréttindi frammi fyrir breskum dómstóli. Því þyrfti íslenska ríkið ekki fyrst að höfða mál fyrir breskum dómstólum áður en mál yrði höfðað fyrir Mannréttindadómstólnum enda sé sýnt fram á að eðlilegt sé að íslenska ríkið komi fram fyrir hönd þeirra hagsmuna sem um ræðir.

Skýrsla Lovells

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá stofnfundi Samstöðu, stjórnmálaflokks undir forystu Lilju Mósesdóttur.

Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu

16:06 Stéttarfélagið Samstaða í Húnavatnssýslum gerir athugasemd við nafn nýs flokks Lilju Mósesdóttur sem ber nafnið Samstaða.  Meira »
Séð yfir Skeiða- og Gnúverjahrepp.

Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna

16:04 Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur samþykkt að lækka starfshlutfall oddvita og að ræða við Kristófer Arnfjörð Tómasson viðskiptafræðing, um að taka að sér framkvæmdastjórastöðu hjá sveitarfélaginu. Meira »

Stefna að opnun í Skálafelli

Stefnt er að því að opna í skíðasvæðið í Skálafelli.
16:03 Borgarráð hefur samþykkir að beina því til stjórnar skíðasvæðanna að hefja viðræður við skíðadeild KR um að deildin sjái um rekstur svæðisins. Meira »

Skipulagsmálum víða áfátt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
15:57 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að ekki sé rétt að hús hafi verið rifin í borginni Bakú í Aserbaídsjan vegna byggingar Kristalshallarinnar. Hann segir að nóg sé að fara í miðbæ Reykjavíkur til að finna fólk sem búi í óvissu um nánasta umhverfi sitt og í grennd við hús sem séu látin drabbast niður. Meira »

Ekið á stúlku á Akureyri

15:38 Ekið var á stúlku á Mýrarvegi á Akureyri um hádegisleytið í dag. Stúlkan sagði við bílstjórann að hún væri ómeidd og hélt hann því leiðar sinnar. Skömmu síðar kom í ljós að hún var með minniháttar meiðsli á fæti. Meira »

Boðuð á fund í Reykjavík

Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir
16:00 Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa reynt að fá Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, norður á fund vegna alvarlegra stöðu í byggðamálum. Samtökin hafa nú verið boðuð á fund í Reykjavík ásamt öðrum fulltrúum landshlutasamtaka. Meira »

Bleikjueldi ekki háð umhverfismati

15:47 Eldi á allt að 200 tonnum af bleikju á ári í Galtalæk, Rangárþingi ytra, er ekki háð mati á umhverfisáhrifum að mati Skipulagsstofnunar. Íslensk matorka rekur fiskeldisstöðina í Galtalæk. Meira »

Karl biskup í Kenía

Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands.
15:34 Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands hefur undanfarna tvo daga heimsótt starfssvæði íslenskra kristniboða í Pókothéraði í Keníu ásamt Jónasi Þórissyni framkvæmastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar. Meira »

Bjóða brúðhjónunum til Íslands

15:25 Iceland Express ætlar að bjóða breskum brúðhjónum til Íslands en parið varð fyrir því að brotist var inn hjá því á brúðkaupsnóttina og peningum sem ætlaðir voru í brúðkaupsferð til Íslands stolið. Brúðurin fór að gráta af gleði er hún fékk símtalið frá Iceland Express. Meira »

Veita Hvít-Rússum aðstoð

Rauði krossinn aðstoðar fólk í Hvíta-Rússlandi
14:50 Rauði kross Íslands hefur sent neyðarstyrk sem nemur tveimur milljónum króna til aðstoðar fórnarlömbum kuldabylgjunnar í Hvíta-Rússlandi en frost í landinu hefur farið niður fyrir þrjátíu gráður á síðustu vikum. Meira »

Um 65% með leka púða

Búið er að skoða um 100 konur sem eru með PIP-púða.
15:16 Rúmlega 100 konur sem erum með PIP-brjóstapúða eru búnar að koma í ómskoðun hjá Krabbameinsfélaginu. Um 65% þeirra eru með leka púða. Meira »

Áfallin staða A-deildar í plús

Fjármálaráðuneytið.
14:44 Áfallin staða A-deildar LSR, þ.e. skuldbindingar umfram eignir, nam í árslok 2010 tæpum 4,2 milljörðum króna eða 2,5% af eignum. Þetta segir í sameiginlegri yfirlýsingu frá fjármálaráðuneytinu og Fjársýslu ríkisins. Meira »

Er hóflega bjartsýnn

Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, er nú staddur í Bretlandi.
14:42 Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra fór yfir stöðuna í makríldeilunni með sjávarútvegsráðherra Bretlands á fundi í Lúndunum í gær. „Ég skynjaði alveg sama áhuga á því að ná samkomulagi eins ég hef gert í Brussel og víðar. En að sama skapi þá viðurkenna menn það að þetta er dálítið flókið og ber mikið í milli.“ Meira »

„Engin minnihlutastjórn“

Kópavogur
14:30 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Kópavogs hefur hug á að lækka fasteignagjöld í bænum. Fara á í söluátak á lóðum, en tugir lausra byggingalóða eru óbyggðar. Um 44% þeirra sem kusu í síðustu sveitarstjórnarkosningum standa á bak við nýja meirihlutann. Meira »

Kjarval lækkar vöruverð

Verð á léttmjólk hefur lækkað um 11%
14:03 Kjarval hafa lækkað vöruverð í verslunum keðjunnar á Suðurlandi, þ.e. á Hellu, Hvolsvelli, Vík, Kirkjubæjarklaustri, Þorlákshöfn og í Vestmannaeyjum um 5-25%. Greint er frá þessu á dfs. Meira »

Fastur á Ódrjúgshálsi í nótt

Helgi Auðunsson, eigandi flutningafyrirtækisins Nönnu á Patreksfirði.
14:30 „Það er skelfilegt að búa við þetta árið 2012,“ segir Helgi Auðunsson, eigandi flutningafyrirtækisins Nönnu á Patreksfirði, en flutningabíll frá fyrirtækinu sat fastur á Ódrjúgshálsi í alla nótt vegna erfiðrar færðar. Hann átti að vera kominn til Patreksfjarðar í morgun, en var enn ekki kominn kl. 14 í dag. Meira »

ESB og Noregur taki sér 90% makrílkvótans

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, ásamt Mariu Damanaki, yfirmanni sjávarútvegsmála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
14:26 „Það er því að okkar áliti tímabært að senda Íslandi mjög sterk pólitísk skilaboð í aðdraganda næstu viðræðna í Reykjavík þannig að Íslendingar komi að borðinu með raunhæft samningsumboð.“ Meira »

Fresta innheimtu hesthúsaskatts

Hestamenn í Reykjavík eru óánægðir með fasteignaskattinn.
14:00 Borgarlögmaður hefur beint þeim tilmælum til fjármálaskrifstofu borgarinnar að hún fresti gjalddaga fasteignaskatts á hesthús í Reykjavík meðan beðið er viðbragða efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis við erindi sem borgin sendi nefndinni. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
GOLFPARADÍS Í VENTURA,SÓLSKIN Í ORLANDO
Til leigu huggulegt hús á frábærum stað í Orlando,18h.golfvöllur/ódýrt spil,sund...
VOLVO S40
Volvo S40 2,0 16V Nýskr. 7/2000, ekinn 183 þ. km, bensín, sj...
Flygill til sölu
Fallegur flygill til sölu. Lengd 150 cm. Ný yfirfarinn, mjög gott hljóðfæri. Ás...
NOKIA GSM
TIL SÖLU Nokia C5 sími ónotaður, nývirði um 30.000 selst á 20.000 Uppl. S: 899...
 
Vélvirki
Iðnaðarmenn
A-K Maskiner Leknes, Lofoten, Noregur Ó...
Námskeið héraðsdómslögmanna

Námskeið til undirbúnings prófi til...
Fundur með formanni - samtök eldri sjálfstæðismanna

SES Samtök eldri sjálfstæðismanna Fun...