Rannsókn nauðsynleg vegna galdmiðlaskiptasamninga

Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóðanna.
Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóðanna.

„Ég tel að það sé nauðsynlegt að rannsaka þetta, því ef satt reynist er það mjög alvarlegt mál,“ segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, um orð Eiríks Tómassonar, útgerðarmanns í Grindavík, á fundi auðlindahóps Sjálfstæðisflokksins 8. janúar sl.

Á fundinum sagði Eiríkur eigendur gömlu viðskiptabankanna hafa látið starfsfólk sitt einbeita sér að því að selja útflutningsatvinnuvegum og lífeyrissjóðum gjaldmiðlaskiptasamninga sem miðuðu að því að hagnast á styrkingu krónunnar. Eigendur bankanna hefðu hins vegar tekið „risastöður“ gegn henni og skapað gríðarlegan vanda fyrir þjóðina alla.

Eiríkur sagði jafnframt að þeir sem væru á þessari skoðun hefðu fengið rækilega sönnun „þegar þeir lásu frétt um að Kjalar hf. sem sagður er hafa átt 10 prósent í Kaupþingi, gerði kröfu um að fá stöður sínar gegn krónunni greiddar út“.

Hrafn segir að ef satt reynist hafi eigendur bankanna unnið gegn hagsmunum lífeyrissjóðanna og í raun þjóðarinnar allrar. Enn standa yfir viðræður við skilanefndir bankanna um að ganga frá samningunum á genginu 175. „Við teljum að það sé algjör markaðsbrestur í stöðunni en höfum viljað ljúka málinu og það er nauðsynlegt að það gerist sem allra fyrst.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert