Jólaverslun dróst saman
Minna var verslað fyrir jólin nú en fyrir ári. mbl.is/Sverrir
Velta í dagvöruverslun dróst saman um 10,4% á föstu verðlagi í desember miðað við sama mánuð árið áður. Á breytilegu verðlagi jókst veltan hins vegar um 18,2% á sama tímabili. Í þessu felst að jólaverslunin minnkaði að raunvirði þó neytendur verðu fleiri krónum til innkaupanna en árið áður. Verð á dagvöru hækkaði um 32% frá desember 2007 til desember 2008.
Þetta kemur fram í nýju yfirliti frá Rannsóknasetri verslunarinnar. Sala á áfengi minnkaði um 9,1% í desember miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi og jókst um 16,5% á breytilegu verðlagi. Verð á áfengi hækkaði um 28,1% í desember síðastliðnum miðað við sama mánuð árið áður samkvæmt verðmælingu Hagstofu Íslands.
Fataverslun minnkaði einnig í desember. Velta fataverslunar var 22,8% minni í desember á föstu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra og dróst saman um 5,5% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á fötum hækkaði um 22,3% á einu ári.
Álíka samdráttur var í veltu skóverslana. Þannig minnkaði velta skóverslunar um 22,6% í desember á föstu verðlagi og um 10,7% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Það er til marks um samdrátt í skóverslun í desember að hún var aðeins 5% meiri en í janúar sama ár, mælt á föstu verðlagi. Verð á skóm hækkaði um 11,6% á síðastliðnum 12 mánuðum.
Í desember minnkaði velta í húsgagnaverslun um 51,3% á föstu verðlagi miðað við desember í fyrra og um 36,6% á breytilegu verðlagi. Húsgagnaverslun dróst einnig saman í desember miðað við mánuðinn þar á undan um 5,5% á föstu verðlagi. Verð á húsgögnum hefur hækkað um 30,1% á síðastliðnum 12 mánuðum.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 14. september 2009, Innlent Verð á dagvöru hefur hækkað um 17,5% á ári
- Þriðjudagur, 7. apríl 2009, Innlent Einkaneysla dregst hratt saman
- Þriðjudagur, 12. janúar 2010, Innlent Minna keypt af áfengi
- Þriðjudagur, 14. október 2008, Innlent Dregur úr smásöluverslun
- Miðvikudagur, 9. desember 2009, Innlent Jólaverslun fer rólega af stað
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































