15 mánaða fangelsi fyrir tilraun til nauðgunar
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í 15 mánaða fangelsi fyrir tilraun til nauðgunar. Maðurinn reyndi að nauðga 16 ára vinkonu dóttur sinnar sem var gestkomandi á heimili hans.
Brotið var framið á heimili mannsins í apríl í fyrra. Sextán ára stúlkan svaf ásamt þremur öðrum stúlkum í herbergi á heimili hans en eiginkona mannsins svaf í öðru herbergi. Stúlkurnar vöknuðu upp við að vinkona þeirra var að kalla á hjálp en þá hafði maðurinn lagst við hlið hennar og reyndi að toga niður buxur hennar.
Eiginkona mannsins vaknaði skömmu síðar og tók eftir að maður hennar var ekki í rúminu. Hún heyrði grátur og fór því fram úr og sá að rifa var á hurðinni á herbergi stúlknanna. Þá heyrði hún mann sinn segja, „Uss uss, á ég að meiða þig?“
Konan sagðist fyrir dómi hafa reiðst mjög við þetta, ruðst inn og lamið hann í höfuðið. Þá hafi maðurinn hætt og horfið á braut.
Maðurinn var mjög drukkinn þegar þetta var og hafði setið að drykkju í rúman hálfan sólarhring. Hann kvaðst bæði við yfirheyrslur hjá lögreglu og fyrir dómi, ekki muna atburðina.
Í dómsorði segir að við ákvörðun refsingar beri að líta til þess að aðfarir mannsins fólu í sér líkamlegt ofbeldi gagnvart brotaþola sem er yngri en 18 ára. Þá liggi fyrir að stúlkan hafi átt erfitt uppdráttar eftir árásina. Á hinn boginn verði einnig að líta til þess við ákvörðun refsingar að brotið var ekki fullframið.
Maðurinn var dæmdur í 15 mánaða fangelsi. Móðir stúlkunnar fór fram á eina milljón króna í skaðabætur en dómurinn dæmdi stúlkunni 400 þúsund króna bætur.
Maðurinn á að baki töluverðan sakarferil. samkvæmt sakavottorði hlaut hann dóm 1989 fyrir líkamsárás. Árið 1990 hlaut hann tvo dóma, skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals og auðgunarbrot og seinna á sama ári tólf mánaða fangelsi fyrir auðgunarbrot en þá var fyrri dómur dæmdur upp. Árið 1991 hlaut maðurinn fangelsi í tvo mánuði fyrir skjalafals og auðgunarbrot. Árið 1993 hlaut hann fangelsi í tvö ár í Hæstarétti fyrir skjalafals og auðgunarbrot. Loks hlaut maðurinn fjögurra mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm árið 2001 fyrir auðgunarbrot.
Innlent »
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 17. janúar 2008, Innlent 18 mánaða fangelsi fyrir auðgunarbrot
- Mánudagur, 6. júlí 2009, Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás og líflátshótanir
- Föstudagur, 5. desember 2008, Innlent Sex mánaða fangelsi fyrir líkamsárás
- Föstudagur, 14. desember 2007, Innlent Ólögmæt meðferð á fundnu fé
- Fimmtudagur, 21. febrúar 2008, Innlent 10 mánaða fangelsi fyrir fjölda afbrota
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































