Norðmenn lýsa undrun á hryðjuverkalögum
Ein af myndunum sem prýðir vefinn indefence.is. mbl.is
Margir Norðmenn hafa kynnt sér vefsíðuna Indefence.is eftir að fréttir birtust í vikunni á norska fréttavefnum ABC Nyheter um hryðjuverkalögin, sem Bretar beittu til að frysta eignir Landsbankans í Bretlandi.
„Miðvikudaginn 8. október gerðist hið ótrúlega: Breska ríkisstjórnin beitti hryðjuverkalögum til að leggja hald á allar eignir íslenska bankans Landsbanka í Bretlandi. Þremur mánuðum síðar eru Íslendingar enn afar illa staddir fjárhagslega og enn er hryðjuverkalöggjöfin í gildi," segir í frétt ABC.
Á vefnum er síðan fjallað um þau viðbrögð Íslendinga, að láta taka af sér myndir þar sem því er komið á framfæri við Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, að Íslendingar séu ekki hryðjuverkamenn.
Ólafur Elíasson, talsmaður Indefece.is, segir að fjöldi Norðmanna hafi í kjölfar þessara greina ABC skráð sig á vef samtakanna og sent Íslendingum kveðjur.
Í annarri frétt ABC Nyheter er haft eftir Ásmundi Stefánssyni, formanni bankaráðs nýja Landsbankans, að Norðmenn og Evrópusambandsríki hafi þrýst á Íslendinga að krefjast þess ekki að deilu um ábyrgð Íslendinga vegna Icesave-reikninga Landsbankans yrði vísað til alþjóðlegs gerðardóms.
Fréttavefurinn segir, að Kristin Halvorsen, fjármálaráðherra Noregs, hafi ekki viljað tjá sig um þessi ummæli Ásmundar. Hins vegar er haft eftir Per Olaf Lundteigen, talsmanni Miðflokksins í fjármálum, að norska Stórþingið hafi ekki haft upplýsingar um þetta.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 9. október 2009, Innlent Hærra lán ekki í boði
- Laugardagur, 11. október 2008, Innlent Norðmenn óttast ítök Rússa hér
- Föstudagur, 8. janúar 2010, Innlent Segja að Íslendingar verði að standa við skuldbindingar sínar
- Föstudagur, 9. janúar 2009, Innlent Frysting tekin fyrir hjá Evrópuráðsþinginu
- Miðvikudagur, 25. febrúar 2009, Innlent Hætt við málssókn gegn Bretum
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































