Ingibjörg Sólrún lengur frá en áður var talið

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. mbl.is/Ómar

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, verður lengur undir læknishendi í Svíþjóð en ráð var fyrir gert  vegna þess höfuðmeins sem hún kenndi sér fyrst í september. Ákveðið hefur verið að frekari sýnataka fari fram á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi áður en til geislameðferðar kemur.  

Ingibjörg Sólrún veiktist er hún var stödd í New York í september sl. Hún gekkst undir aðgerð á Mount Sinai sjúkrahúsinu í New York í lok september vegna meins í fjórða heilavökvahólfi. Hún fór síðan í aðra aðgerð á Landspítalanum í október.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert