Stefna slökkviliði Árborgar vegna símapeninga
Liðsmenn Brunavarna Árnessýslu hafa stefnt slökkviliðinu fyrir héraðsdóm vegna vangoldinna símagreiðslna síðustu þriggja ára. Starfsmenn segja um kjarasamningsbundnar greiðslur að ræða og vanskil nemi nú rúmlega 3,6 milljónum króna, án vaxta og kostnaðar.
Rúmlega 60 starfsmenn eru skráðir hjá slökkviliði Brunavarna Árnessýslu, (BÁ) en ákveðið var að höfða mál fyrir hönd 25 þeirra. Starfsmenn vísa í ákvæði kjarasamnings Launanefndar sveitarfélaga og
Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Þar segir að greiða beri starfsmönnum slökkviliðsins sérstaka þóknun tvisvar á ári fyrir að bera alltaf á sér síma þannig að til þeirra náist á nóttu sem degi. Í dag nemur þessi upphæð rúmlega 9.800 krónum eða samtals tæplega 20 þúsund krónum á ári.
Símaþóknunin hefur ekki verið greidd í nokkur ár en ákveðið var að hefja innheimtuaðgerðir vegna áranna 2006, 2007 og 2008. Formlegar innheimtuaðgerðir hófust fyrir rúmum þremur mánuðum en karpað hefur verið um greiðslurnar mun lengur.
Formanni stjórnar BÁ voru birtar stefnur 25 starfsmanna fyrir nokkru en samkvæmt upplýsingum mbl.is, hófust formlegar samningaumleitanir fyrst í gær með atbeina Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Margrét K. Erlingsdóttir, formaður stjórnar Brunavarna Árnessýslu vildi ekkert tjá sig um málið. Hún sagði að um launamál starfsmanna væri að ræða og viðræður væru í gangi.
Eins og áður segir nema vangoldnar símagreiðslur rúmlega 3,6 milljónum króna. Þá er hvorki búið að taka tillit til vaxta eða dráttarvaxta né málskostnaðar.
Samningaumleitanir hafa hingað til ekki borið árangur og verða stefnur starfsmannanna 25 gegn slökkviliðinu því þingfestar að óbreyttu á miðvikudag.
Bloggað um fréttina
-
Baldvin Jónsson Er það svo komið að slökkviliðsmenn á Íslandi þurfi stefnu ... -
Njörður Helgason BABÚ.
Innlent »
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 23. janúar 2009, Innlent Engin sátt í sjónmáli
- Þriðjudagur, 2. júní 2009, Innlent Slökkviliðsmenn dragi uppsagnir sínar til baka
- Þriðjudagur, 12. maí 2009, Innlent Brunavarnir Árnessýslu svara
- Laugardagur, 2. janúar 2010, Innlent Eldur í Njarðvík
- Laugardagur, 10. október 2009, Innlent Ellefu starfsmönnum sagt upp hjá Árborg
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli




































