Páll: Niðurstaðan kom á óvart

Páll Magnússon.
Páll Magnússon.

Páll Magnússon ætlar ekki að bjóða sig í embætti varaformanns en niðurstaðan í formannskjörinu kom honum á óvart þar sem hann taldi fylgi sitt væri meira. Páll fékk 18,9% atkvæða í fyrri umferðinni í formannskjöri Framsóknarflokksins.

Páll ætlar að halda áfram að starfa fyrir flokkinn en gefur ekki út á hvort hann ætlar í framboð í næstu Alþingiskosningum. Páll sagðist í samtali við mbl.is lýsa yfir stuðningi við næsta formann Framsóknarflokksins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert