Mjólk vissulega góð en staðan víða slæm

stækka

mbl.is/RAX

Morgunblaðið Eftir Skapta Hallgrímsson - skapti@mbl.is

Hamrað hefur verið á því mörg undangengin ár í auglýsingum að mjólk sé góð og fáir andmæla því. En það kostar sitt að galdra fram þetta hvítagull sveitanna; uppbygging hefur verið töluverð í greininni, margir bændur hafa fjárfest mikið síðustu ár og erfitt ástand í þjóðfélaginu bitnar ekki síður á þeim en öðrum. Nú er svo komið að þriðjungur kúabúa hér á landi er talinn í verulegum fjárhagserfiðleikum.

Ekkert bú hefur enn lagt upp laupana og svo virðist sem menn séu nokkuð bjartsýnir á að til þess þurfi ekki að koma á næstunni þrátt fyrir svo slæma fjárhagsstöðu sumra að þau séu í raun mjög nálægt því að komast í þrot. En, vel að merkja, þá er töluverður meirihluti þeirra sagður standa býsna vel.

Alls eru á áttunda hundrað kúabú hér á landi. Þriðjungur gæti því verið 200-250 bú. Eins og nærri má geta eru mestu erfiðleikarnir þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað síðustu ár. Bændur sem byggt hafa ný fjós eða stækkað, keypt ný tæki, mjólkurkvóta og jafnvel land. Að ekki sé talað um þá sem hafa tekið erlend lán.

„Það er með okkur eins og annan atvinnuveg í landinu og mörg heimili; þeir sem staðið hafa í miklum framkvæmdum síðustu ár eru mjög skuldugir og staðan erfið. En það yrði ansi blóðugt ef þeir sem hafa staðið í því að byggja upp, og eru þar af leiðandi með bestu aðstöðuna, þyrftu að hætta búskap. Enda held ég að svo verði ekki,“ sagði Sigurgeir Hreinsson, kúabóndi á Hríshóli og formaður Búnaðarsambands Eyjafjarðar, við Morgunblaðið.

Stærstu mjólkurframleiðslusvæðin eru Suðurland og Norðausturland og er staðan sambærileg í báðum landshlutum.

Í nýjasta Bændablaðinu segir Runólfur Sigursveinsson hjá Búnaðarsambandi Suðurlands að 40-50 kúabú eigi í verulegum erfiðleikum, en þau eru alls 260 á svæðinu. Runólfur upplýsir að nær öll þau 40-50 bú sem eigi í erfiðleikum með skuldbindingar sínar hafi fengið frestun á afborgunarhluta erlenda lánahlutans og sumir einnig á vaxtaþættinum. Misjafnt sé hve fresturinn sé langur, oft tveir til sex mánuðir.

Runólfur segir að álíka mörg bú séu allverulega skuldsett en muni komast í gegnum ástandið án skuldbreytinga eða annarra sértækra ráðstafana en tveir þriðju búanna, um 170, skuldi ekki mikið og sigli tiltölulega lygnan sjó í gegnum kreppuna.

Vignir Sigurðsson, ráðunautur hjá Búgarði – ráðgjafarþjónustu á Norðausturlandi, segir að um 100 bú á svæðinu séu ekki í rekstrarvanda vegna skulda. Alls eru 162 kúabú á svæðinu, hann segir ríflega þriðjung mikið skuldsettan og 15-20 bú í verulegum rekstrarerfiðleikum af þeim sökum.

Sigurgeir Hreinsson segir mikla óvissu ríkjandi hjá bændum almennt. Jákvætt sé að heyfengur hafi verið mjög góður í fyrra og nóg til, en hvað reksturinn varði séu þeir eiginlega í lausu lofti og erfitt sé að átta sig á þróuninni. Ef enn harðni á dalnum í efnahagslífinu í vor, eins og sumir spái, geti það haft slæmar afleiðingar.

„Það eru ekki til neinar töfralausnir fyrir kúabændur heldur þarf að skoða framleiðsluatvinnuvegina í heild,“ segir Sigurgeir Hreinsson.

Verðhrun á kvóta

Verð á mjólkurkvóta er mjög lágt og viðskipti undanfarið lítil sem engin. Um áramót hafði um 1 milljón lítra skipt um eigendur frá upphafi verðlagsársins 1. september en undanfarin ár hafa viðskiptin verið um 2 milljónir lítra á sama tíma og ekki mörg ár síðan samanlögð viðskipti um áramót voru 3 milljónir lítra. Verð á lítra fór hæst í 405 krónur um mitt ár 2005. Það þótti reyndar óeðlilega hátt en hefur síðan farið lægst í 270 krónur og upp í 320.

Í september sl. var verðið á lítranum 304 krónur en er nú 238 krónur Það er lækkun um 50 krónur frá því upplýsingar voru birtar síðast og viðskiptin svo lítil að reikna má með að upphæðir í síðustu samningum séu enn lægri en meðalverðið. Líklega er ekki fjarri lagi að raunverð á kvóta hafi lækkað um helming á stuttum tíma, skv. upplýsingum Bændasamtaka Íslands.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kanadadollari. Úr myndasafni.

Segir stuðning við Kanadadollar

Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

Í gær, 21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Í gær, 20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

Í gær, 18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
Í gær, 18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

Í gær, 18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

Í gær, 18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Í gær, 18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

Í gær, 17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Í gær, 18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
Í gær, 17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Harður árekstur í Engidal

Í gær, 17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
Í gær, 17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

Í gær, 16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

Í gær, 17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

Í gær, 16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
Í gær, 16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Haraldur Guðni Eiðsson er fertugur í dag
Haraldur verður að heiman á afmælisdaginn. Hann afþakkar blóm og gjafir en biður...
50 vinsælustu vörurnar í netverslun femin.is
Kynntu þér fjölbreytt úrval í netverslun www.femin.is og yfir 7.000 vöruliði ! ...
Lagersalan Kauptúni 3 Garðabæ
Stálvaskar,verð 5000-stk.Opið mánud. til föstud.kl. 13-18 laugard.og sunnud. kl...
Mercedes Benz 500 SE árg 1990
Til sölu góður og vel með farinn Mercedes Benz 500 SE árg 1990 ekinn 239.000 Bíl...
 
Hjálpræðisherinn samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Sigurður...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
12836 fellahverfi útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Samkoma sunnudagur
Félagsstarf
Sunnudagur Kl. 11.00 Samkoma o...